Forritanleg raflagnakerfi II (KNX Basic - hluti B)
Tillögur að vali íMeistaraskóla rafvirkja/Meistaraskóla rafeindavirkja
Forritanleg raflagnakerfi II (MRAK4KX01)
Undanfari:Forritanleg raflagnakerfi I (KNX Basic - hluti A)
Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur kynnist flóknari forritanlegum ljósa- og hússtjórnarkerfum, tilgangi þeirra og möguleikum. Farið er í möguleika EIB/KNX kerfisins og hvernig má nota það við stýringu t.d. hitaferla, skjáa, veðurstöðva og ljósasena. Þá er fjallað um lagnir og forritun þeirra. Nemendur æfa sig í að leggja lagnir og fá þjálfun í að tengja búnað og forrita kerfi, ganga frá þeim og leiðbeina öðrum um notkun þeirra. Þá eru gagnabankar framleiðenda og notkun þeirra kynnt. Í þessum áfanga forrita nemendur flóknari kerfi en í þeim fyrri og farið er dýpra í forritun einstakra íhluta forritanlegra kerfa.
Þetta námskeið veitir Evrópska KNX Basic vottun.
Við skráningu fær þátttakandi afslátt af ETS
Ef þátttakandi klárar námskeið með prófi verður hann KNX Partner og það sést á KNX vefsíðunni
Námskeiðsgögn
Kennslugögn í PDF formi, nemendur fá aðgang að fartölvu til leysa verkefnin en eru hvattir til að koma með eigin fartölvu.
Hópar og dagsetningar
Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita þegar næsti hópur opnar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 48.400 kr. |
|---|---|
| SART | 41.140 kr. |
| Er í meistaraskóla | 9.680 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


