Fara beint í efni

Brunaþéttingar

AlmennH2026NBRUN04ÞÉTT

Viðfangsefni námskeiðsins eru hinar ýmsu gerðir af brunaþéttingum. Fylgt er reglugerð um brunavarnir, einnig læra nemendur skil á brunahólfun mannvirkja, hinum ýmsu gerðum
brunaþéttinga, eiginleikum þeirra, notkunarsviði og helstu reglum þar um.

Athugið: Þátttakendur sem ljúka þessu námskeiði fá heimild til þess að starfa við brunaþéttingar þar sem fyrir liggur starfsleyfi frá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun og eiga þá einnig kost á því að sækja um starfsleyfi sjálfir að fengnu meistarabréfi.

Eftir þetta námskeið hafa þátttakendur einnig heimild til þess að lagfæra brunaþéttingar eftir sjálfa sig og eftir aðra iðnaðarmenn.

Sjá frekari upplýsingar á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Nánar

Námskeiðið er kennt bæði í stað- og fjarkennslu. Staðkennsla fer fram á Stórhöfða 27, en fjarkennsla í rauntíma í gegnum Teams.

Athugið að þátttakendur námskeiða sem að nota Teams fjarfundarbúnað þurfa að vera í mynd til þess að fá viðurkenningu að þeim loknum.

Kennari

  • Guðmundur Gunnarsson

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    15. október · Fimmtudag
    Tími
    kl. 08:30–12:30
    Staður
    Stórhöfða 27, Teams
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð19.400 kr.
RSÍ endurmenntun6.790 kr.
SART16.490 kr.
Er í meistaraskóla3.880 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →