Fara beint í efni

After Effects - Masterclass í After Effects

Almenn · TæknifólkH2026NEFFE08EFF2

Námskeið í samstarfi við Iðuna - Fræðslusetur

Áfangaheiti: EFFE08EFF2 Á þessu námskeiði er farið dýpra í vinnu i After Effects og farið yfir raunveruleg verkefni á borð við Snjallverslun fyrir Krónuna.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað þeim sem þegar hafa grunnþekkingu í hreyfihönnun og vilja dýpka skilning sinn, skerpa á tækni og þróa eigin stíl í hreyfimyndagerð.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist aukna færni í að nota Adobe After Effects til að skapa flæðandi hreyfimyndir sem segja sterka sögu.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Tímasetningu, hrynjanda og sjónræna taktvitund.

  • Hvernig byggja má upp heildstæða sögu í gegnum hreyfingu og myndmál.

  • Verklegar æfingar sem styrkja undirstöður og auka verkkunnáttu.

  • Raunveruleg animation-verkefni, skref fyrir skref, til að sýna vinnuferli hreyfihönnuðar.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta beitt grunngildum hreyfihönnunar af öryggi.

  • Geta skapað heildrænar og faglegar hreyfimyndir í After Effects.

  • Hafa dýpri skilning á vinnuferli og hugsun hreyfihönnuðar.

  • Nýta verklega reynslu til að efla eigin hreyfihönnun.

Aðrar upplýsingar:

Nemendur í fjarnámi þurfa að hafa aðgang að After Effects á eigin tölvu.

Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.

Hópar og dagsetningar

Engir hópar opnir

Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita þegar næsti hópur opnar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð55.000 kr.
SART46.750 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →