Fara beint í efni

Rafmagnsöryggi um jólin

Jólin eru hátíð ljóssins og kveikja þá flestir á jólaseríum og jólaljósum. Mikilvægt er að ganga um rafmagn og rafmagnsbúnað á ábyrgan hátt.

Jólin eru hátíð ljóssins og kveikja þá flestir á jólaseríum og jólaljósum.

Mikilvægt er að ganga um rafmagn og rafmagnsbúnað á ábyrgan hátt.

Atriði sem vert er að hafa í huga:

Látum aldrei loga á ljósunum á jólatrénu yfir nótt eða þegar engin er heima

Hendum gömlum jólaljósum sem eru úr sér gengin

Notum ætíð ljósaperur af réttri gerð, stærð og styrkleika

Gætum þess að brennanleg efni séu ekki nálægt jólaljósum

Óvarinn rafbúnaður getur valdið raflosti

Vörum okkur á óvönduðum jólaljósum

Inniljós má aldrei nota utandyra

Förum eftir leiðbeiningum um uppsetningu og notkun

Látum logandi kerti aldrei standa ofan á raftæki

Góður siður er að skipta um rafhlöður í reykskynjurum fyrir hver jól

Nánari upplýsingar hjá mannvirkjastofnun

Rafmagnsöryggi um jólin