Rafmennt og Iðan fræðslusetur stóðu fyrir sameiginlegum hádegisfundi um gæðastjórnun og ISO 9001 vottun í verktakafyrirtækjum þriðjudaginn 14. október. Upptaka af erindunum verður aðgengileg á YouTube rás Rafmenntar innan skamms.
Á fundinum var fjallað um ávinning gæðastjórnunar og hvernig hún getur stutt við faglegri rekstur, aukin gæði og stöðugar umbætur. Þá var farið yfir hvað felst í gæðakerfi sem uppfyllir kröfur ISO 9001 og hvaða áskoranir fylgja því að innleiða slíkt kerfi og halda því við, en það krefst jafnan verulegrar þátttöku stjórnenda, tíma starfsfólks og fjárfestingar af hálfu fyrirtækja.
Markmið fundarins var að skapa vettvang fyrir opna umræðu um hvort ávinningurinn vegi upp þann kostnað og þá fyrirhöfn sem fylgir uppbyggingu og rekstri vottaðs gæðakerfis, og hvernig fyrirtæki geta tryggt að kerfið verði raunverulegt stjórntæki en ekki aðeins formleg skjöl í möppu.
Fyrirlesarar voru Eyjólfur Bjarnason byggingatæknifræðingur, sem starfað hefur sem öryggis- og gæðastjóri, ráðgjafi og bæjartæknifræðingur, og Sigrún Melax verkfræðingur, sem hefur unnið við gæðastjórnun um árabil, meðal annars við uppsetningu, innleiðingu og rekstur gæðakerfa og virkniskoðanir.
Við þökkum þátttakendum kærlega fyrir góðar umræður og virka þátttöku.


