Fara beint í efni

Cisco Certified Network Associate - CCNA

Cisco Certified Network Associate - CCNA

Undirbúningur fyrir CCNA 200-301 vottunina frá Cisco — grunnhugtök netkerfa, IP-þjónusta, öryggi, sjálfvirkni og forritun.

Um námskeiðið

CCNA námskeiðið er hannað til að veita þátttakendum þekkingu og færni tengda grunnhugtökum netkerfa, aðgengi að netkerfum, IP-þjónustum, grundvallaratriðum er varðar öryggi, sjálfvirkni og forritun þeirra. Þetta námskeið hjálpar einnig þátttakendum að undirbúa sig fyrir CCNA 200-301 prófið ásamt því að öðlast nauðsynlega þekkingu og færni til að geta skipulagt, hannað, stillt, hámarkað og leyst úr algengum tengivandamálum netkerfa tengdum TCP/IP, DNS, DHCP, STP, HSRP, IP-samskiptareglum eins og RIPv2, OSPF, EIGRP og BGP. Enn fremur styður þetta námskeið kennara og leiðbeinendur í kennslu á námsefni CCNA námskrárinnar. Námið er líka undirbúningur fyrir próf í 200-301 CCNA – Cisco Certified Network Associate fyrir þau sem hafa áhuga á að ná þeirri gráðu.

Það sem þú munt læra

  • Grunnatriði netkerfa: Lærir um OSI- og TCP/IP-líkönin, IPv4, IPv6, IP-töluúthlutun og undirnet (subnet).

  • Cisco búnaður: Kynnist notkun á Cisco beinum (router) og skiptum (switch) og lærir að stilla þessi tæki fyrir skilvirka netnotkun.

  • Beinar (router): Lærir um stillingar og virkni helstu rútunar-ferla eins og RIP, EIGRP og OSPF.

  • Skiptar (switch): Skilja VLAN, trönk, spanning-tree samskiptareglur (STP), Layer 2 skipta og fleira.

  • Öryggi netkerfa: Innleiða grunnöryggisráðstafanir, þar á meðal ACLs, til að vernda netkerfi.

  • Víðnet (WAN): Lærir að stilla og stýra WAN-tengingum, þar á meðal með PPP, xDSL og VPN.

  • Greining vandamála: Kynnist notkun greiningartóla til að leysa vandamál með beinum og skiptum í litlum til meðalstórum netkerfum.

  • Uppsetning: Hvernig skal setja upp grunnþjónustur fyrir net, eins og DHCP, NAT og VPN.

Markmið

  • Nemendur munu að loknu námskeiði þekkja og skilja uppbyggingu netkerfa og þau tæki og hugbúnað sem notaður er

  • Nýta sér undirnettækni (subnetting) bæði á IPv4 og IPv6 netkerfum

  • Þekkja og skilgreina helstu samskiptastaðla, með áherslu á TCP og UDP

  • Hafa skilning á Layer-2 skiptum, sýndarnetum (VLAN), broadcast

  • Skilja rútunar-ferla

  • Bilanagreina einföld netkerfi

  • Setja upp grunnþjónustur í netkerfi

  • Setja upp beina og skipta með Cisco IOS-stýrikerfinu

  • Nýta sér aðgengis-lista (access-list) til að stjórna netumferð

Fyrir hverja er námskeiðið

  • Fagaðila í netkerfum sem vilja fá CCNA vottun

  • Byrjendur sem vilja öðlast víðtæka þekkingu á uppbyggingu tölvukerfa

  • Nemendur í upplýsingatækni og byrjendur sem eru spenntir fyrir því að byggja upp starfsferil í netrekstri

  • Kerfisstjóra og sérfræðinga sem leita að dýpri skilningi á Cisco netkerfum

Forkröfur

  • Þekking að ígildi CompTIA Network+

  • Grunnskilningur á netkerfishugtökum (t.d. IP-töluúthlutun, undirnet)

  • Ekki er krafist fyrri reynslu af Cisco búnaði

Kennsluaðferðir og kennari

Kennslan samanstendur af fyrirlestrum og verklegum æfingum í Cisco Networking Academy. Kennslustundir verða teknar upp, þátttakendum gefst því kostur að rifja upp tíma, horfa á fyrirlestra sem þeir hafa misst af og jafnvel tekið hluta eða allt námið í fjarkennslu.

Meðal námsgagna sem nemendur fá afhent er bókin „CCNA 200-301 Official Cert Guide Library" eftir Wendell Odom, gefin út af Cisco Press.

Kennari er Abdelaziz Ghazal, viðurkenndur Cisco System Instructor. Abdelaziz er með eftirfarandi gráður frá Cisco: CCNA, CCNA Security, CCNP og Cisco Certified Internetworking Expert (CCIE).

Aðrar upplýsingar

Athygli er vakin á því að stefnt er á námskeið í CCNP á vorönn 2026.

Cisco CCNA 200-301 gráðan fæst með því að standast próf frá Cisco. Hægt er að taka próf í hverri viku hjá viðurkenndum prófstöðvum.

Dagskrá

10. febrúar – 5. mars: þriðjudagar kl. 08:00–12:00 og miðvikudagar kl. 13:00–17:00. 12. mars – 4. júní: fimmtudagar kl. 08:00–12:00.

Þriðjudagurinn 10. febrúar 08:00 – 12:00

Þriðjudagurinn 17. febrúar 08:00 – 12:00

Þriðjudagurinn 24. febrúar 08:00 – 12:00

Þriðjudagurinn 3. mars 08:00 – 12:00

Miðvikudagurinn 4. mars 13:00 – 17:00

Fimmtudagurinn 12. mars 08:00 – 12:00

Fimmtudagurinn 19. mars 08:00 – 12:00

Fimmtudagurinn 26. mars 08:00 – 12:00

Fimmtudagurinn 2. apríl 08:00 – 12:00

Fimmtudagurinn 9. apríl 08:00 – 12:00

Fimmtudagurinn 16. apríl 08:00 – 12:00

Fimmtudagurinn 23. apríl 08:00 – 12:00

Fimmtudagurinn 30. apríl 08:00 – 12:00

Fimmtudagurinn 7. maí 08:00 – 12:00

Fimmtudagurinn 14. maí 08:00 – 12:00

Fimmtudagurinn 21. maí 08:00 – 12:00

Fimmtudagurinn 28. maí 08:00 – 12:00

Fimmtudagurinn 4. júní 08:00 – 12:00