Fara beint í efni

CompTIA Network+ - Grunnur að netkerfum

AlmennH2026NUPTÆ40NetW-TIA

Byggðu upp þekkingu á netkerfum og búðu þig undir CompTIA Network+ vottun.

Lýsing

Viltu öðlast hagnýta þekkingu á netkerfum og undirbúa þig fyrir alþjóðlegu CompTIA Network+ vottunina?

Á þessu námskeiði öðlast þú góðan skilning á uppbyggingu, virkni og öryggi tölvuneta. Þú lærir hvernig mismunandi netbúnaður vinnur saman, hvernig tölvusamskipti fara fram og hvernig greina má og leysa algeng vandamál í netkerfum.

Með verklegum æfingum og raunhæfum verkefnum færðu þjálfun í notkun greiningartóla, bilanaleit og öruggri uppsetningu netkerfa. Að námskeiði loknu hefur þú öðlast hagnýta færni sem nýtist í daglegu starfi og traustan grunn til frekara náms í upplýsingatækni, svo sem CCNA og netöryggi.

Kennari

  • Abdelaziz Ghazal

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    27. okt. – 26. nóv. · Þriðjudagar og fimmtudagar
    Tími
    kl. 17:00–21:00
    Staður
    Stórhöfði 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð165.000 kr.
RSÍ endurmenntun60.000 kr.
SART135.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →