Rofastjórar
Lærðu um rekstur og hegðun raforkukerfa og tengivirkja.
Lýsing
Tilgangurinn með þessu námskeiði er að fræða verðandi rofastjóra og endurmennta núverandi rofastjóra um rekstur og hegðun raforkukerfa, tengivirkja og þann búnað sem í þeim er.
Forkröfur fyrir þetta námskeið eru að hafa lokið Kunnáttumannanámskeiði þar sem farið er ýtarlega yfir lög og reglugerðir.
Nánari lýsing
Farið er yfir lög og reglugerðir, verklag, ábyrgðir, merkingar á búnaði, tetra samskipti og gæðakerfi öryggisstjórnunar.
Námskeiðið er kaflaskipt með verkefnum og svo lokapróf á þriðja degi.
Kennari
- Helgi Sigurjónsson
Hópar og dagsetningar
Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu netfangið þitt og við sendum þér póst þegar hópur opnar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 72.000 kr. |
|---|---|
| SART | 61.200 kr. |
| Er í meistaraskóla | 14.400 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


