Rafmagnsfræði
Farið er yfir útskýringar og útreikninga í rafmagnsfræðum.
Lýsing
Kjarnanámskeið í Meistaraskóla rafvirkja
Rafmagnsfræði (MRAF4MS02) - 2 einingar
Viðfangsefni þessa áfanga er að nemendur kynnast hinum ýmsu heitum, reglum og reikniaðferðum sem notaðar eru við útreikninga í rafmagnsfræði.
Unnið er áfram með þekkingu í rafiðnaðarnámi og þá reynslu sem rafvirkjar hafa öðlast í starfi sem sveinar.
Áhersla er lögð á að nemendur geti unnið verkefni sem innihalda spennuföll, straumdeilingu, töp í strengjum uppbygging þeirra og viðnámsútreikninga, afl ( raun,laun og sýndarafl ) og fasaleiðréttingar.
Námið fer fram í tveimur staðlotum (Stórhöfða 27, 110 Reykjavík)
Lota 1:
9. september 17:00 - 21:00 – staðbundin kennsla með streymi.
Lota 2:
21. október 17:00- 21:00 – staðbundin kennsla með streymi.
Þess á milli fer það fram með verkefnaskilum.
Athugið: Þátttakendur námskeiða sem að nota Teams fjarfundarbúnað þurfa að vera í mynd til þess að fá viðurkenningu að þeim loknum.
Nánari lýsing
Námskeiðið byggist á helstu reglum og reikniaðferðum sem notaðar eru við útreikninga í rafmagnsfræði. Verkefni sem gilda til einkunnar eru unnin upp úr kennslubók í Rafmagnsfræði sem er aðgengileg inni á Rafbók. Verkefnin innihalda einna helst viðnámsútreikninga, spennuföll, strauma, þétta, spólur, fasvik og afl. Til stuðnings er einnig notast við formúlublöð frá Rafmennt og Formúlubókina, sem dæmi.
Námsmat og mat á verkefnum
1.lota – Fyrri staðlota í Rafmennt, 4 klst. ( einnig í fjarkennslu )
Efni staðlotunnar er:
1.1 - Kynning áfangans
1.2 - Spennu- og straumdeiling (Kirchoffs lögmál)
1.3 - Byrja að kynna segulfræði (Kafli 14)
Lesefni: Rafmagnsfræði og mælingar kaflar 4, 8 og 13
Heimadæmi 1 lagt fyrir (15% af lokaeinkunn)
- 10 dæmi, hvert þeirra gildir 10% af heildareinkunn verkefnisins, og þar með 1,5% af lokaeinkunn áfangans.
2.lota - Eingöngu myndbandskennsla – Engin mæting né staðkennsla í þessari lotu.
2.1 - Uppbygging strengja
2.2 - Viðnámsútreikningar og spennufall í strengjum
2.3 - Spennar og uppbygging þeirra (segulfræði)
Lesefni: Rafmagnsfræði og mælingar kaflar 4, 7 og 20.
Heimadæmi 2 lagt fyrir (15% af lokaeinkunn)
- 6 dæmi, hvert þeirra gildir 16,67% af heildareinkunn verkefnisins, og þar með 2,5% af lokaeinkunn áfangans.
3.lota - Eingöngu myndbandskennsla – Engin mæting né staðkennsla í þessari lotu.
3.1 - Förum yfir fræði fyrir þétta og spólur í riðstraum
3.2 - Viðnámsútreikningar í þéttum og spólum.
3.3 – Skoðum Aflþríhyrning og Pýþagóras
3.4 – Útreikningar á Launafli, og Launaflsútjöfnun með spólum og þéttum
Lesefni: Rafmagnsfræði og mælingar kaflar 13, 14 og 15.
Heimadæmi 3 lagt fyrir (25% af lokaeinkunn)
- 5 dæmi, hvert þeirra gildir 20% af heildareinkunn verkefnisins, og þar með 5% af lokaeinkunn áfangans.
4.lota – Seinni staðlota í Rafmennt, 4 klst. ( einnig í fjarkennslu )
Efni staðlotunnar er:
4.1 - Stutt upprifjun á efninu
4.2 - Almennt spjall um rafmagn og áfangann
4.3 - Lokaverkefni lagt fyrir hópinn. (45% af lokaeinkunn)
- 4 dæmi, í 12 liðum. Hver liður gildir 8,33% af heildareinkunn verkefnisins, og þar með 3,75% af lokaeinkunn áfangans.
Kennari
- Marinó Guðmundsson
Hópar og dagsetningar
Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu netfangið þitt og við sendum þér póst þegar hópur opnar.
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


