Fara beint í efni

Loxone hússtjórnarkerfi – Uppsetning og forritun (Grunnnámskeið)

Almenn · TæknifólkH2026NFRLA32Loxone Partner

Öðlastu Silver Partner vottun frá Loxone með verklegri þjálfun.

Námskeið í samstarfi við Rafport og Loxone

Lýsing

Loxone er öflugt hússtjórnarkerfi sem sameinar stýringu lýsingar, hitunar, loftræsingar, gluggatjalda, aðgangsstýringar, hljóðkerfa og orkustjórnunar í eina lausn.

Á þessu fjögurra daga grunnnámskeiði fá þátttakendur verklega þjálfun í uppsetningu, forritun og gangsetningu Loxone kerfa. Unnið er með raunhæf verkefni þar sem þátttakendur setja upp kerfi frá grunni, forrita virkni og prófa lausnir.

Kennslan byggist á viðurkenndu kennsluefni Loxone og hentar þeim sem vilja vinna með kerfið í atvinnuskyni.

Að námskeiði loknu hljóta þátttakendur Silver Partner vottun frá Loxone sem veitir aðgang að ítarefni og hagstæðari kjörum á búnaði.

Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.

Hópar og dagsetningar

Engir hópar opnir

Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu netfangið þitt og við sendum þér póst þegar hópur opnar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð169.000 kr.
RSÍ endurmenntun106.000 kr.
SART155.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →