Læsa merkja prófa
Lærðu að koma í veg fyrir skaða á fólki vegna óvæntrar ræsingar.
Lýsing
Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við vél- og rafbúnað þar sem hætta er á óvæntri ræsingu eða orkulosun.
Nánari lýsing
Farið er yfir aðferðir til að koma í veg fyrir skaða á fólki vegna óvæntrar ræsingar eða áhleypingar með notkun persónulása.
Markmið
Eftir þetta námskeið ætti nemandi að
geta skipulagt, framkvæmt, prófað og fjarlægt læsingar sem ætlað er að tryggja öryggi starfsfólks
geta notað persónulás til að tryggja öryggi sitt
Hópar og dagsetningar
Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu netfangið þitt og við sendum þér póst þegar hópur opnar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 19.400 kr. |
|---|---|
| SART | 16.490 kr. |
| Er í meistaraskóla | 3.880 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


