Fara beint í efni

Hjólaviðgerðir

AlmennH2026NALMN10HJÓL

Lærðu að sinna grunnviðhaldi reiðhjóla og meta viðgerðarþörf.

Lýsing

Viltu læra að sinna viðhaldi á eigin reiðhjóli eða rifja upp gamla takta?

Námskeiðið hentar öllum sem vilja öðlast grunnþekkingu á viðhaldi og einföldum viðgerðum reiðhjóla, hvort sem þeir eru byrjendur eða hafa einhverja reynslu. Það er tilvalið fyrir hjólreiðafólk og fjölskyldur sem vilja geta sinnt viðhaldi hjóla heimilisins sjálf.

Þú lærir að stilla, yfirfara og sinna grunnviðhaldi reiðhjóla ásamt því að framkvæma einfaldar öryggisskoðanir og meta viðgerðarþörf.

Áhersla er lögð á verklega þjálfun þar sem þú vinnur með eigið hjól á þínum hraða undir leiðsögn.

Engin forkunnátta er nauðsynleg og aðeins sex þátttakendur eru á námskeiðinu.

Hópar og dagsetningar

Engir hópar opnir

Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu netfangið þitt og við sendum þér póst þegar hópur opnar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð39.900 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →