Bilanaleit
Lærðu að finna bilanir í hefðbundnum raflögnum neysluveitu.
Lýsing
Kjarnanámskeið í Meistaraskóla rafvirkja
Bilanaleit (MBIL4MS01) - 1 eining
Viðfangsefni áfangans er bilanaleit í hefðbundnum raflögnum neysluveitu.
Við námið er notaður búnaður til eftirlíkinga bilana og unnin verkefni til lausnar þeim.
Nánari lýsing
Verkleg kennsla í úttektarmælingum rafverktaka. Lærðu hvaða mælingar þarf að gera og hvernig á að framkvæma þær. Kennslan tekur einnig á vandamálum sem geta komið fram við bilanir, svo sem víxlun leiðara, rof á leiðara, skammhlaup milli leiðara, óvenjulega virkni bilunarstraumsrofa og aukið viðnám til jarðar.
Kennari
- Óskar Frank Guðmundsson
Hópar og dagsetningar
Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu netfangið þitt og við sendum þér póst þegar hópur opnar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 31.200 kr. |
|---|---|
| SART | 26.520 kr. |
| Meistaraskóli | 6.240 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


