Fara beint í efni

Andleg þrautseigja

AlmennH2026NSTAR02Andlþr

Kynntu þér streituviðbrögð og áhrif jákvæðra tilfinninga á andlega líðan.

Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR

Lýsing

Á námskeiðinu öðlast þátttakendur þekkingu á andlegri þrautseigju og læra að takast á við áskoranir og erfiðleika lífsins á uppbyggilegan hátt. Farið er yfir tilfinningakerfi heilans, streituviðbrögð, núvitund, öndunartækni og áhrif jákvæðra tilfinninga á andlega líðan. Þátttakendur læra hagnýtar aðferðir til að efla streituþol, virkja þakklæti og setja sér markmið í samræmi við eigin gildi.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja styrkja andlega líðan sína, auka sjálfsþekkingu og öðlast betri verkfæri til að takast á við daglegar áskoranir. Námið fer fram á stafrænu formi og geta þátttakendur farið yfir efnið á eigin hraða.

Kennari

  • Sigrún Þóra Sveinsdóttir

    Sálfræðingur og leiðtogi sálfræðiþjónustu fullorðinna í Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu

    Sigrún Þóra er doktorsnemi í sálfræðideild Háskólans í Reykjavík þar sem hún sérhæfir sig meðal annars í lífeðlislegri sálfræði á tengslum milli hjarta og heila og áhrifum þeirra á hugræna frammistöðu og andlega heilsu. Hún hefur starfað sem sálfræðingur lögreglu þar sem hún þjálfaði lögregluþjóna í að byggja upp andlega þrautseigju og streituþol.

    Sigrún Þóra hefur unnið með fjölbreyttum hópi skjólstæðinga og starfað meðal annars sem yfirsálfræðingur Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, sálfræðingur hjá Ljósinu og sem sjálfstætt starfandi sálfræðingur. Hún er einnig stofnandi og meðeigandi hugbúnaðarfyrirtækisins Proency sem sérhæfir sig í lausnum sem meta andlega heilsu í rauntíma.

    Sjá einnig grein Sigrúnar Þóru: Andleg þrautseigja – að vaxa í gegnum áskoranir

Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.

Hópar og dagsetningar

Dagsetningar eru sveigjanlegar: þú byrjar þegar þér hentar innan tímabilsins.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    15. okt. – 19. des.
    Tími
    Alltaf opið
    Staður
    Á netinu
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð25.000 kr.
RSÍ endurmenntun5.900 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →