Fara beint í efni

3D skönnun og endurgerð hluta

AlmennH2026NALMN12 3D skönnun

Lærðu að skanna raunverulega hluti og umbreyta þeim í nákvæm þrívíddarlíkön.

Námskeið í samstarfi við Iðuna - Fræðslusetur

Lýsing

Viltu geta breytt raunverulegum hlut í nákvæmt þrívíddarlíkan eða endurgert íhlut sem erfitt er að nálgast? Á þessu verklega námskeiði lærir þú að skanna hluti með 3D skanna eða snjallsíma, vinna úr skanngögnum og nýta CAD-hugbúnað til að endurgera og hanna íhluti.

Þú kynnist einnig aðferðum til að búa til þrívíddarlíkön út frá ljósmyndum og mælingum. Að lokum færðu að prófa eigin hönnun með þrívíddarprentun og sannreyna að íhlutir passi. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja nýta tæknina í starfi.

Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.

Hópar og dagsetningar

Veldu þann hóp sem hentar þér. Sömu dagskrá er fylgt í öllum hópum.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    9.–11. nóvember
    Tími
    kl. 17:00–21:00
    Staður
    Vatnagarðar 20
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
  2. Hópur 2

    Dagsetning
    16.–18. nóvember
    Tími
    kl. 17:00–21:00
    Staður
    Vatnagarðar 20
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð85.000 kr.
RSÍ endurmenntun29.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →