Ný kynslóð ljósgjafa: Hver er framtíðar ljósgjafinn?

 

 

 

Síðustu 10 ár hefur lýsingarheimurinn séð meiri breytingar í ljóstækni heldur er öll 60 árin þar á undan og við stefnum hratt áfram í þróun á ljósgjöfum. En hvaða ljósgjafa höfum við í höndunum í dag og í hvað stefnir?

Verður orðatiltækið; „Að kveikja á perunni“ brátt eitthvað sem tengir okkur við fortíðina líkt og videótæki og vasadiskó? Er LED komið til að vera eða tekur OLED við af LED? 

Er framtíðarljósgjafinn kannski Laser? Í allri þessari þróun má þó ekki gleyma grunnatriðum lýsingar og farið verður yfir hvaða þætti þarf að hafa í huga við val á ljósgjafa, eins hverjir eru kostir og gallar nútíma ljósgjafa.

Hvernig skipti ég um peru? - hefur sem sagt öðlast nýja merkingu með þróun ljósgjafa.

 

Fyrirlesari:  Rósa Dögg Þorsteinsdóttir  -  Lýsingarhönnuður og innanhússarkitekt fhi

Fundartími:  Miðvikudagur 29.mars 2017 kl.20:00 - 22:00.

Fundarstaður:    Rafiðnaðarskólinn – Stórhöfða 27 – 1.hæð