Rafmennt tók þátt í starfsgreinakynningu í Reykjanesbæ fimmtudaginn 15. október, þar sem um 900 nemendur kynntu sér fjölbreytt störf og námsleiðir.
Fimmtudaginn 15. október tók Rafmennt þátt í starfsgreinakynningu í Reykjanesbæ. Kynningin er ætluð nemendum í efstu bekkjum grunnskóla í Reykjanesbæ og þangað mættu einnig eldri nemendur frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Alls lögðu um 900 nemendur leið sína á kynninguna.
Markmið kynningarinnar er að efla starfsfræðslu og gefa ungu fólki tækifæri til að kynnast þeim fjölbreyttu leiðum sem standa því til boða þegar kemur að námi og störfum í framtíðinni.
Rúnar Sigurður Sigurjónsson og Hermann Sigurðsson stóðu vaktina á bás Rafmenntar og kynntu nám og störf í rafiðngreinum. Á básnum gátu nemendur spreytt sig á Rofatöskunni og Leiðaranum. Þar fengu þau að prófa sig áfram með eigin höndum og kynnast því hvernig er að vinna með rafmagn. Mikil aðsókn var að básnum og margir nemendur sýndu bæði handlagni og þolinmæði.
Rafiðngreinar eru fjölbreyttar og bjóða upp á fjölmörg tækifæri, hvort sem fólk hefur áhuga á tækni, orkuskiptum, sjálfvirkni, fjarskiptum eða mannvirkjagerð. Það var því sérstaklega ánægjulegt að hitta svo marga forvitna og áhugasama nemendur.
Rafmennt þakkar skipuleggjendum fyrir gott framtak og nemendum fyrir komuna.
Hver veit nema rafvirkjar framtíðarinnar hafi litið við á básnum?


