Tengdu Claude beint við vef Rafmenntar og fáðu svör um efni og námskeið.
Nú er hægt að tengja Claude beint við vef Rafmenntar og fá svör á mannamáli um allt sem þar er birt: námskeið og lausa hópa, verðskrá, viðburði, meistaraskólann, sveinspróf og almennar upplýsingar um starfsemina. Í stað þess að leita á vefnum má einfaldlega spyrja, til dæmis hvaða námskeið eru í boði í nóvember, hvenær eru næstu sveinspróf haldin eða hvað kjarnanámskeið kostar fyrir félaga í RSÍ.
Claude sækir svörin beint af rafmennt.is og vísar á þá síðu sem svarið byggir á, þannig að upplýsingar um dagsetningar, verð, laus pláss og annað efni eru alltaf þær nýjustu sem birtar hafa verið.
Svona tengir þú Claude við Rafmennt
Rafmennt er aðgengilegt sem tenging (connector) í Claude. Opnaðu claude.ai/directory/rafmennt og smelltu á Connect. Einnig má finna tenginguna í Claude undir Settings → Connectors með því að leita að „Rafmennt“.
Engrar innskráningar er þörf. Eftir það má einfaldlega spyrja Claude um nám og þjónustu Rafmenntar.


