Rafmennt tók þátt í Bleikum október, árveknisátaki Krabbameinsfélagsins, og sýndi stuðning sinn með ýmsum hætti í mánuðinum.
Bleikur október er árlegt átak Krabbameinsfélagsins þar sem athyglinni er beint að krabbameinum hjá konum. Eins og mörg önnur fyrirtæki og stofnanir lét Rafmennt sitt ekki eftir liggja.
Bleiki Rafmenntarfáninn hefur blaktað við hún í október og allt starfsfólk fékk Bleiku slaufuna.
Á Bleika deginum var vefur Rafmenntar í bleikum búningi og starfsfólk kom saman í bleiku kaffiboði.
Rafmennt styrkir jafnframt Krabbameinsfélagið reglulega.
Í ár hvetur Krabbameinsfélagið konur til að vera vakandi fyrir einkennum sem geta bent til krabbameins.
Því fyrr sem krabbamein greinist, því betri eru batahorfurnar. Við hvetjum öll til að kynna sér átakið og styðja Bleiku slaufuna.


