Vinnuvernd 101
Námskeið í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf.
Á námskeiðinu verður farið yfir það sem skiptir mestu máli á stuttan og snarpan máta, m.a. verður fjallað um:
Vinnuverndarstarf sem þarf að fara fram á öllum vinnustöðum
Skipan og hlutverk öryggisnefnda, öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða
Skipulag og kröfur varðandi áhættumat starfa
Hvaða vinnuslys á að skrá og tilkynna
Helstu forvarnir vegna vinnuslysa
Sálfélagslegt áhættumat, stefnu og viðbragðsáætlun vegna eineltis og áreitni
Líkamlegt álag, hávaða, loftræstingu og meðferð hættulegra efna
Þátttakendur fá send námsgögn í tölvupósti, linka á bæklinga sem þeir lesa og 7 fyrirlestra, samtals um 40 mín. sem þeir horfa á. Að lokum taka þátttakendur stutt krossapróf úr efninu.
Námskeiðið fer fram í fullu fjarnámi. Það er hægt að byrja og læra þegar fólk vill.


