Þrívíddarmódeling í Fusion 360 og Þrívíddarprentun
5. nóvember verður farið í kynningu og kennslu á undirstöðuatriðum í Fusion 360 með því markmiði að nemendur geti módelað einfaldari hluti til þrívíddarprentunar.
Farið verður yfir helstu verkfæri í Fusion 360, hreyfingar í þrívíddarumhverfinu og hvernig forritið nýtist í að teikna módel til þrívíddarprentunar.
12. nóvember verða þrívíddarprentarar á staðnum þar sem farið er yfir undirstöðuatriði í þrívíddarprentun.
Skoðum mismunandi prentaðferðir, efnisval og íhluti. Uppsetning á prentara, stillingar á staðbúnaði og undirbúningur fyrir prentun. Þátttakendur fá síðan tækifæri til að prenta það sem þeir teiknuðu fyrri daginn.
Undirbúningur og búnaður frá þátttakendum: Þátttakendur mæta með eigin fartölvu með Fusion 360 og Ultimaker Cura uppsettu. Einnig er gott að mæta með mús með skrunhjóli.
Fusion 360 Personal (frítt) er hægt að sækja hér: https://www.autodesk.com/products/fusion-360/personal-download (Skráning nauðsynleg og gildir í 3 ár).
Fullt verð: 47.800 kr (innifalið 5000 kr efnisgjald)
RSÍ endurmenntun: 20.000 kr (innifalið 5000 kr efnisgjald)


