Viðurkenndur sérfræðingur í vélaöryggi
Áfangaheiti: RRVV24CMSE CMSE® – Certified Machinery Safety Expert er alþjóðlega viðurkennt fjögurra daga námskeið frá Pilz í samstarfi við TÜV NORD.
Þátttakendur fá dýpkandi þekkingu á:
Löggjöf og stöðlum fyrir vélaöryggi.
CE-merkingu og vélatilskipuninni.
Áhættumati og áhættustjórnun.
Öryggisbúnaði og rafmagnsöryggi.
Hönnun öryggisstýringar samkvæmt ISO 13849 og IEC 62061
Að loknu námskeiði og prófi öðlast þátttakendur rétt til að bera titilinn CMSE® – Certified Machinery Safety Expert, sem gildir í 4 ár og er viðurkennt um allan heim.
Kennari: sérfræðingur frá PILZ


