Cisco Certified Network Professional - CCNP
CCNP Enterprise námskeiðið er fyrir þátttakendur sem vilja dýpka þekkingu sína á hönnun, uppsetningu, stjórnun og rekstri flóknari netkerfa. CCNP Enterprise er framhaldsgráða fyrir þau sem hafa lokið CCNA. Námið undirbýr þátttakendur fyrir tvö próf í CCNP Enterprise gráðunni: 350-401 ENCOR (Core) og 300-410 ENARSI (Advanced Routing & Services). Cisco CCNP gráðan fæst með því standast tvö próf frá Cisco. Cisco 350-401 ENCOR – Core prófið og annað próf að eigin vali, á þessu námskeiði er undirbúningur fyrir Cisco 300-410 ENARSI prófið.
Það sem þú munt læra:
Enterprise Architecture & Design: Hönnunarlíkön, SD-Wan, QoS stillingar, SD-Access.
Virtualisering og Netvirkni: VRF, GRE og IPsec tunneling. Hypervisor, Sýndarvélar og sýndarskiptar.
Innviðir neta á lagi 2 og lagi 3: Layer 2 Trunkar, RTSP, MST. Layer 3 rútun, stilla af OSPFv2/3. Útskýra policy-based rútun.
VPN og WAN lausnir: Þekkja MPLS, stilla og auðkenna DMVPN.
Tryggja netöryggi og bilanaleit: Notkun á SNMP, traceroute, ping og syslog. IPSLA fyrir frammistöðumælinga. Nota Flexible NetFlow.
Sjálfvirkni og gervigreind í netrekstri: Python grunnur fyrir sjálfvirkni. Útskýring á API fyrir Cisco Catalyst Center og SD-WAN Manager. Túlka og skilja REST-API svör.
Markmið:
Uppsetning á beinum og skiptum með Cisco IOS-stýrikerfinu.
Geta innleitt og stýrt flóknari routing- og switching-stillingar á stærri netkerfum
Hafa djúpan skilning á hönnun, rekstri og öryggi stærri netkerfa.
Framkvæmt kerfisbundna bilanagreiningu með Cisco tólum, packet analysis og automation.
Unnið með og útskýrt sýndavæðingu með LISP, VXLAN og VLAN
Vera vel undirbúin fyrir 350-401 ENCOR og 300-410 ENARSI prófin.
Fyrir hverja er námskeiðið:
Fagaðila í netkerfum sem vilja fá CCNP vottun.
Kerfisstjóra og netstjóra sem starfa með Cisco netbúnað.
Sérfræðinga sem vilja dýpka þekkingu sína í routing, WAN, VPN, öryggi og automation
Kerfisstjóra og sérfræðinga sem leita að dýpri skilningi á Cisco netkerfum.
Forkröfur:
Þekking að íglildi Cisco CCNA
Krafist fyrri reynslu af Cisco búnaði.
Góð færni í IP-netum, CLI og grunn routing/switching
Almenn þekking á netöryggi er kostur
Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum, frá kl 17:00 - 21:00, ásamt því að kennsla verður laugardagana 21.mars og 18.apríl milli 10:00 -14:00. Námskeið er 10 vikur, alls 20 skipti. Kennslan samanstendur af fyrirlestrum og verklegum æfingum í Cisco Networking Academy. Kennslustundir verða teknar upp, þátttakendum gefst því kostur að rifja upp tíma, horfa á fyrirlestra sem þeir hafa misst af ogjafnvel tekið hluta eða allt námið í fjarkennslu.
Fyrsti tími er 3. mars 2026 og síðasti tímin er 7. maí 2026. Meðal námsgagna sem nemendur fá afhent er bókin "CCNP Enterprise Core ENCOR 350-401 and Advanced Routing ENARSI 300-410 Official Cert Guide Library" sem gefin er út af Cisco Press.
Forkröfur: Cisco CCNA gráðan eða sambærilegi þekking.
Kennsluefni er á ensku og þurfa nemendur að hafa góð tök á ensku. Nemendur þurfa að hafa grunnþekkingu á Cisco IOS, Cisco Packet Tracer og almenna notendaþekkingu á stýrkerfi þeirra tölvu sem notuð er á námskeiðinu
Kennari er Abdelaziz Ghazal viðurkenndur Cisco System Instructor. Abdelaziz er með eftirfrandi gráður frá Cisco: CCNA, CCNA Security, CCNP og Cisco Certified Internetworking Expert CCIE.
Cisco CCNP gráðan fæst með því standast tvö próf frá Cisco. Cisco 350-401 ENCOR – Core prófið og annað próf að eigin vali, á þessu námskeiði er undirbúningur fyrir Cisco 300-410 ENARSI prófið, standist nemandi bæði þessi próf fær hann CISCO CCNP Enterprise gráðuna. Hægt er að taka próf í hverri viku hjá viðkenndum prófstöðvum.
Athygli er vakin á því að námskeið CCNA er komið á dagskrá fyrir vorönn 2026
Námið er styrkhæft af flestum stéttarfélögum.


