Tilboðsgerð í Ákvæðisvinnukerfi rafiðna
Tilboðsgerð í Ákvæðisvinnukerfi rafiðna
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja kynnast tilboðsgerð í Ákvæðisvinnukerfi rafiðna (á www.ar.is).
Kerfið byggir á Ákvæðisvinnugrundvelli rafiðna sem hefur verið að þróast í yfir hálfa öld og byggir á traustum grunni.
Dagskrá námskeiðsins verður þessi:
Innskráning og upphafssíða
Ákvæðisgrundvöllurinn – uppbygging
Magnskrár og magnskráning
Tilboðsgerð
Verðbanki
Annað (sniðmát, ábendingar, starfsmenn, eigin verð, magnskrárskýringar, birgjar …)
Þeir sem vilja geta komið með sína eigin fartölvu, fengið aðgang að kerfinu ef þeir hafa hann ekki fyrir og útbúið tilboð á námskeiðinu, en það er ekki skilyrði fyrir þátttöku.
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
ATH! Námskeiðið sem er 10.feb verður í boði bæði stað- og fjarkennslu(TEAMs)


