FortiManager – miðlæg stjórnun Fortinet-umhverfa
Lærðu að miðstýra FortiGate-eldveggjum með FortiManager á öruggan og skilvirkan hátt.
Lýsing
Hvernig er hægt að einfalda stjórnun margra FortiGate-eldveggja, auka öryggi og draga úr tímafrekri handavinnu? Á þessu námskeiði læra þátttakendur að nýta FortiManager til að miðstýra netöryggi og tryggja samræmdar stillingar á milli tækja og starfsstöðva.
Farið verður yfir innleiðingu lausnarinnar, skráningu tækja, uppsetningu öryggisreglna, sniðmát, sjálfvirka dreifingu stillinga og stjórnun SD-WAN. Einnig verður fjallað um skipulagðar uppfærslur, breytingastjórnun, rekjanleika og bilanagreiningu.
Að námskeiði loknu hafa þátttakendur öðlast þekkingu til að einfalda daglegan rekstur, lágmarka hættu á mannlegum mistökum og byggja upp öruggara, skilvirkara og samræmdara Fortinet-umhverfi.
Nánari lýsing
Námskeiðið veitir þátttakendum hagnýta þekkingu á FortiManager og hvernig lausnin er notuð til að stjórna mörgum FortiGate-eldveggjum á öruggan, samræmdan og skilvirkan hátt.
Farið verður yfir innleiðingu FortiManager, skráningu tækja, miðlæga uppsetningu öryggisreglna og stýringu breytinga. Þátttakendur læra að nota policy packages, sameiginlega hluti, sniðmát og sjálfvirka dreifingu stillinga til að tryggja samræmi milli staðsetninga.
Sérstök áhersla verður lögð á örugga breytingastjórnun, rekjanleika, endurnýtanlegar uppsetningar og aðferðir sem draga úr handavinnu og hættu á mannlegum mistökum.
Helstu viðfangsefni
Hlutverk og uppbygging FortiManager
Skráning og heimild tækja
Administrative Domains (ADOM)
Device Manager og Policy & Objects
Miðlæg stjórnun firewall policies
Policy packages
CLI templates og provisioning templates
Meta fields og breytur fyrir mismunandi staðsetningar
Uppsetning og stýring SD-WAN
Stjórnun FortiSwitch og FortiAP í gegnum FortiGate
Installation Preview og dreifing breytinga
Revision history, afritun og endurheimt
Workspace, læsingar og samþykktarferli
Firmware-stjórnun og skipulagðar uppfærslur
Bilanagreining og úrvinnsla á uppsetningarvillum
Kennari
- Ingólfur Andri Ágústsson
Ingólfur er netöryggissérfræðingur og Fortinet Certified Trainer með 10 ára reynslu í upplýsingatækni, þar af 7 ár í netkerfum og netöryggi. Hann hefur víðtæka reynslu af uppbyggingu, rekstri og öryggi netkerfa og leggur áherslu á að tengja kennsluna við raunveruleg verkefni og áskoranir úr atvinnulífinu.
Ingólfur er með flestar virkar Fortinet-vottanir á Íslandi. Hann hefur lokið NSE4, NSE5 og NSE6, auk þriggja NSE7-vottana, meðal annars með sérhæfingu í OT-öryggi, sem snýr að vernd iðnaðar- og rekstrarkerfa. Þá hlaut hann viðurkenninguna Fortinet Champion 2025.
Í kennslu leggur Ingólfur áherslu á skýrar útskýringar, hagnýt dæmi og að nemendur öðlist bæði skilning og sjálfstraust til að beita þekkingunni í starfi.
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 17.–18. nóvember · Þriðjudagur og miðvikudagur
- Tími
- kl. 08:30–12:30
- Staður
- Strórhöfði 27
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 31.200 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 10.920 kr. |
| SART | 26.520 kr. |
| Er í meistaraskóla | 6.240 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


