---
title: "Iðnnám og atvinnulíf – iðnnám á krossgötum?"
description: "Nemastofa atvinnulífsins býður til morgunfundar um stöðu og framtíð iðnnáms. Fjallað verður um tölfræði, viðhorf iðnmeistara og samspil skóla- og vinnustaðanáms."
canonical: "https://www.rafmennt.is/vidburdir/idnnam-og-atvinnulif-idnnam-a-krossgotum"
---

# Iðnnám og atvinnulíf – iðnnám á krossgötum?

Nemastofa atvinnulífsins býður til morgunfundar um stöðu og framtíð iðnnáms. Fjallað verður um tölfræði, viðhorf iðnmeistara og samspil skóla- og vinnustaðanáms.

[Skrá mig](https://rsvp.rafmennt.is/ubsu35mf?name={$name}&amp;email={$email})

Dagsetning

25. nóvember

Tími

kl. 08:00–10:00

Staður

Í streymi

Verð

Ókeypis

**Í beinu streymi**

Nemastofa atvinnulífsins heldur morgunfund miðvikudaginn 25. nóvember kl. 8:30 til 10:00 að Stórhöfða 27. **Morgunhressing verður í boði frá kl. 8.**

Á fundinum verður rætt hvernig iðnnám stendur gagnvart þörfum atvinnulífs og samfélags, hvar tækifærin liggja og hvað þarf að bæta.

**Dagskrá**

- **Vilborg Helga Harðardóttir**, formaður stjórnar Nemastofu atvinnulífsins
- Iðn- og tæknimenntun – uppbyggingarþörf samfélagsins: **Hulda Birna Baldursdóttir, SI**
- Tölfræði iðnnáms og niðurstöður könnunar á viðhorfum iðnmeistara til ferilbóka og vinnustaðanáms: **Ólafur Jónsson, Nemastofu**
- Um skipulag skóla- og vinnustaðanáms í iðnnámi: **Helgi Rafnsson, Rafholt**

**Pallborð**
Staða iðngreina, samspil skóla- og vinnustaðanáms, áskoranir og tækifæri.

- **Guðni Einarsson**, formaður meistarafélags rafeindavirkja
- **Halldór Gunnarsson**, rafvirkja- og rafeindavirkjameistari
- **Jón Sigurðsson**, formaður meistarafélags húsasmiða
- **Gauti Fannar Gestsson**, blikksmíðameistari

Fundinum lýkur með samantekt og tillögum.

**Skráning**
Fundurinn er öllum opinn. Vinsamlegast skráðu þig á skráningarsíðunni.

Source: https://www.rafmennt.is/vidburdir/idnnam-og-atvinnulif-idnnam-a-krossgotum
