---
title: "Gæðastjórnun og ISO 9001 í verktakastarfsemi"
description: "Rafmennt og Iðan fræðslusetur bjóða til hádegisfundar um gæðastjórnun og ISO 9001 vottun í verktakafyrirtækjum"
canonical: "https://www.rafmennt.is/vidburdir/gaedastjornun-og-iso-9001-i-verktakastarfsemi"
---

# Gæðastjórnun og ISO 9001 í verktakastarfsemi

Liðinn

Rafmennt og Iðan fræðslusetur bjóða til hádegisfundar um gæðastjórnun og ISO 9001 vottun í verktakafyrirtækjum

Viðburðinum er lokið

Staður

Stórhöfða 27, 1. hæð

Verð

Ókeypis

Gott gæðakerfi getur stutt við faglegri rekstur, aukið gæði og ýtt undir stöðugar umbætur. Það kostar þó sitt. Innleiðing og viðhald krefjast þátttöku stjórnenda, tíma starfsfólks og fjárfestingar. Á fundinum verður rætt opinskátt hvort ávinningurinn standi undir kostnaðinum og hvernig fyrirtæki geta tryggt að kerfið nýtist í raun við stjórnun en verði ekki bara skjöl í möppu.

Fundurinn hentar stjórnendum, gæðastjórum og öðrum sem koma að rekstri verktaka- og iðnfyrirtækja.

## Fyrirlesarar

- **Eyjólfur Bjarnason**

    Eyjólfur er byggingatæknifræðingur frá Noregi. Hann hefur starfað sem öryggis- og gæðastjóri, ráðgjafi og bæjartæknifræðingur.
- **Sigrún Melax**

    Sigrún er verkfræðingur sem unnið hefur við gæðastjórnun um árabil. Hún hefur víðtæka reynslu af fjölbreyttum hliðum gæðastjórnunar, svo sem uppsetningu, innleiðingu og rekstri gæðakerfa og virkniskoðunum.

## Fleiri viðburðir

[Allir viðburðir →](https://www.rafmennt.is/vidburdir)

[**Ókeypis**

ViðburðurEinnig í streymi

### Iðnnám og atvinnulíf – iðnnám á krossgötum?

Nemastofa atvinnulífsins býður til morgunfundar um stöðu iðnnáms, tækifæri og áskoranir.

25. nóvember · kl. 08:00–10:00](https://www.rafmennt.is/vidburdir/idnnam-og-atvinnulif-idnnam-a-krossgotum)

Source: https://www.rafmennt.is/vidburdir/gaedastjornun-og-iso-9001-i-verktakastarfsemi
