---
title: "Um okkur"
description: "HLUTVERK Rafmennt er þekkingarfyrirtæki sem veitir þjónustu og sinnir fræðslu fyrir raf- og tækniiðnaðinn á Íslandi. Hlutverk Rafmenntar er að veita fagaðilum og nemendum í raf- og tæknigreinum…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/um-okkur"
---

# Um okkur

**HLUTVERK**

Rafmennt er þekkingarfyrirtæki sem veitir þjónustu og sinnir fræðslu fyrir raf- og tækniiðnaðinn á Íslandi. Hlutverk Rafmenntar er að veita fagaðilum og nemendum í raf- og tæknigreinum tækifæri til að stunda öflugt framhaldsnám og sinna endurmenntun. Rafmennt heldur reglulega endurmenntunarnámskeið og fyrirlestra fyrir fagfólk í raf- og tækniiðnaðinum, sér um kennslu fagnámshluta meistaraskólans, heldur úti rafbók.is netbókasafn rafiðnaðarins og hefur umsjón með raunfærnimati og sveinsprófum.

Source: https://www.rafmennt.is/um-okkur
