---
title: "Einstaklingsstyrkir"
description: "Félagsmenn félaga innan Rafiðnaðarsambands Íslands geta sótt um styrki til náms. Hjá Rafmennt Námsframboð Rafmennt er niðurgreitt nám af Menntasjóði rafiðnaðarins. Algengt er að niðurgreiðslan nemi…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/thjonusta/styrkir/reglur-menntasjods-rafidnadarins-vegna-styrkja"
---

# Einstaklingsstyrkir

#### Félagsmenn félaga innan Rafiðnaðarsambands Íslands geta sótt um styrki til náms.

#### Hjá Rafmennt

Námsframboð Rafmennt er niðurgreitt nám af Menntasjóði rafiðnaðarins. Algengt er að niðurgreiðslan nemi um 2/3 af námskeiðsgjaldi. Við skráningu á námskeið velja félagsmenn félaga innan vébanda Rafiðnaðarsambands Íslands þann verðflokk sem merkur er "Greiði í eftirmenntunarsjóð RSÍ" og eru þar með að njóta niðurgreiðslu.

**Raunfærnimat**

Þátttakendur sem ekki hafa lokið námi á framhaldsskólastigi geta farið í raunfærnimat sér að kostnaðarlausu.

Þátttakendur sem hafa áður tekið þátt í raunfærnimati og lokið einingum og/eða hafa lokið framhaldsskólanámi greiða **50.000.- kr**. fyrir önnina óháð einingafjölda.

**Ferðastyrkir**

Ferðastyrkir eru í boði fyrir þá félagsmenn sem þurfa að sækja námskeið á vegum Rafmenntar fjarri heimili sínu.

Hafið samband til að fá nánari upplýsingar eða sendið póst á hafdis@rafmennt.is

[Ferðastyrkir](https://www.rafmennt.is/thjonusta/styrkir/ferdastyrkir)

#### Nám utan námsframboðs Rafmenntar

Félagsmenn innan RSÍ geta átt kost á styrkjum eða niðurgreiðslu hjá öðrum menntastofnunum en því sem er í boði hjá Rafmennt. Hafið endilega samband til að fá nánari upplýsingar eða sendið póst á hafdis@rafmennt.is

#### [Starfstengdir styrkir](https://www.rafmennt.is/thjonusta/styrkir/reglur-menntasjods-rafidnadarins-vegna-styrkja/einstaklingsstyrkir-reglur)

[Almennur námskeiðsstyrkur - (nánar á síðu RSÍ)](https://rafis.is/styrkir/)) d

*[Reglur um einstaklingsstyrki -\> sjá mínar síður á heimasíðu RSÍ](https://rafis.is/styrkir/)*

*[Reglur um styrki til framhaldsnáms -\> sjá mínar síður á heimasíðu RSÍ](https://rafis.is/styrkir/)*

Source: https://www.rafmennt.is/thjonusta/styrkir/reglur-menntasjods-rafidnadarins-vegna-styrkja
