title: "Raunfærnimatsferlið"
description: "Þegar þú hefur ákveðið að taka þátt í raunfærnimati fer eftirfarandi ferli af stað."
canonical: "https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ferlid"

# Raunfærnimatsferlið

Þegar þú hefur ákveðið að taka þátt í raunfærnimati fer eftirfarandi ferli af stað.

## Undirbúningur

1. **Umsókn**

Þú fyllir út og sendir umsókn rafrænt á Innu.
2. **Kynningarfundur**

Þú mætir á kynningarfund þar sem verkefni ferlisins eru kynnt.
3. **Fundur með náms- og starfsráðgjafa**

Þú bókar og mætir á fund þar sem þú færð meðal annars aðstoð við gerð færnimöppu.
4. **Færnimappa**

Þú fyllir út færnimöppuna og skilar henni rafrænt á Innu.
5. **Gátlistafundur**

Farið er yfir gerð gátlista fyrir sjálfsmat á færni.
6. **Gátlisti**

Þú fyllir út gátlistann og skilar rafrænt á Innu.
7. **Fundur um sjálfsmatið**

Þú bókar og mætir á fund með fræðslufulltrúa um sjálfsmatið.

## Raunfærnimatið

Metendur setja upp viðtalstíma með þátttakendum og þú mætir í matsviðtölin. Raunfærnimat byggist á samtali milli þín og metanda, sem er fagaðili í greininni, þar sem áhersla er lögð á að þú fáir tækifæri til að koma þekkingu þinni og færni á framfæri. Þú getur verið beðin/n um að sýna færni þína, fengið lýsingar á aðstæðum til að vinna úr, eða aðrar aðferðir sem gera færnina sýnilegri. Náms- og starfsráðgjafi getur setið í matsviðtölum þegar það á við.

## Eftirfylgd

Allar niðurstöður úr matsviðtölum eru skráðar á Innu. Þú getur bókað tíma hjá náms- og starfsráðgjafa Rafmenntar sem fer yfir niðurstöðurnar með þér og ræðir næstu skref.

## Lokamarkmið eftir greinum

### Í stuði – rafiðngreinar

Matið er á móti námskrá, út frá hæfniviðmiðum áfanga í grunndeild og framhaldsnámi rafiðngreina. Þegar öllum námsþáttum er fullnægt fá þátttakendur rétt til að þreyta sveinspróf. Ekki er hægt að útskrifast frá Rafmennt; allir sem þreyta sveinspróf þurfa að hafa útskrifast úr skóla. [Nánar um Ertu í stuði?](https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ertu-i-studi)

### Í hljóði – hljóðtækni

Matið er á móti námskrá, út frá hæfniviðmiðum áfanga í hljóðtækni. Þegar öllum námsþáttum er fullnægt fá þátttakendur burtfararskírteini í hljóðtækni. Ekki er hægt að útskrifast frá Rafmennt. [Nánar um Ertu í hljóði?](https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ertu-i-hljodi)

### Í ljósi – viðburðalýsing

Matið er á móti færnikröfum sem faghópur úr ólíkum greinum viðburðalýsingar og hópur stjórnenda settu saman. Færni þeirra sem starfa við viðburðalýsingu var kortlögð út frá verkefnunum og hæfninni sem starfið krefst.

### Í mynd – kvikmyndatækni

Matið er á móti námskrá, út frá hæfniviðmiðum áfanga í kvikmyndatækni. Þegar öllum námsþáttum er fullnægt fá þátttakendur burtfararskírteini í kvikmyndatækni frá Stúdíó Sýrlandi. Ekki er hægt að útskrifast frá Rafmennt.

Source: https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ferlid