title: "Ertu í stuði? – Raunfærnimat í rafiðngreinum"
description: "Verkefnið „Ertu í stuði?“ nær til þeirra sem hafa af einhverjum ástæðum ekki lokið námi sem þeir hófu í rafiðngreinum. Raunfærnimatið er á móti námskrá, út frá hæfniviðmiðum áfanga sem kenndir eru í…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ertu-i-studi"

# Ertu í stuði? – Raunfærnimat í rafiðngreinum

Verkefnið „Ertu í stuði?“ nær til þeirra sem hafa af einhverjum ástæðum ekki lokið námi sem þeir hófu í rafiðngreinum. Raunfærnimatið er á móti námskrá, út frá hæfniviðmiðum áfanga sem kenndir eru í grunndeild og fagnámi rafiðngreina, svo hægt sé að mæta þátttakendum hvar sem þeir eru staddir í náminu og hjálpa þeim að komast aftur af stað og ljúka því. Markmiðið er að þátttakendur afli sér réttinda til að þreyta sveinspróf.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Rafiðnaðarsamband Íslands, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Tækniskólann, Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Samtök rafverktaka, starfsgreinaráð í rafiðngreinum og Rafmennt.

## Hvernig þetta gengur

Þú sækir um rafrænt á Innu á [umsóknarfresti](https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat). Eftir að honum lýkur mæta þátttakendur á kynningarfund á Teams þar sem verkefni ferlisins eru kynnt; þeir sem hafa áhuga á fundinum en hafa ekki sótt um geta haft samband við náms- og starfsráðgjafa. Ferlið í heild er lýst á síðunni [Raunfærnimatsferlið](https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ferlid).

Þegar öllum námsþáttum er fullnægt fá þátttakendur rétt til að þreyta sveinspróf. Ekki er hægt að útskrifast frá Rafmennt – útskriftin er úr skóla.

## Áður en þú sækir um

Kynntu þér inntökuskilyrðin og kostnaðinn og hakaðu við hvort atriði. Hnappurinn á umsóknina birtist þegar þú hefur hakað við bæði.

**0** af 2 atriðum lokið

1.

Raunfærnimat er fyrir þá sem hafa starfað í rafiðnaði án þess að hafa lokið námi í greininni.

| Mat á | Lágmarksaldur | Starfsreynsla í greininni |

| 3. þrepi | 23 ára | 3 ár |
| 4. þrepi | 25 ára | 5 ár |

Ég hef kynnt mér inntökuskilyrðin
2.
3. **Sækja um**

Hakaðu við öll atriðin hér að ofan til að fá hlekkinn á umsóknina.

## Verkefni

- [Word**Færnimappa**Skjalið sem þú fyllir út og skilar á Innu · 236 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/ed6c4f56-c123-4c91-8ceb-47c63673a896)
- [Excel**Gátlisti fyrir grunndeild rafiðna**45 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/aec33030-4d7a-42e0-881a-25a8b3976297)
- [Excel**Gátlisti fyrir framhaldsáfanga í rafvirkjun**37 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/272bb5fb-c167-4c4f-afc4-cfcb52b0dfb9)
- [Excel**Gátlisti fyrir rafeindavirkjun**47 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/e614ac88-6d9d-4889-b530-d2d7941445d6)

## Gögn

- [PDF**Námskrá í rafiðngreinum 2009**740 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/e1aef326-b58b-4678-8060-7e48dbb1bc02)
- [Vefur**Námskrá í rafvirkjun 2019**namskra.is](https://namskra.is/programmes/a30d4210-6d1a-4426-908c-b516c3b2400d)
- [Vefur**Námskrá í rafeindavirkjun 2019**namskra.is](https://namskra.is/programmes/6720a12e-7fcc-4e5a-9b99-39018594cc69)
- [Síða**Hæfniviðmið fyrir rafiðngreinar**](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/haefnividmid)
- [Vefur**Rafbók**Rafbókasafn](http://www.rafbok.is/)

## Náms- og starfsráðgjafi fylgir þér eftir í gegnum allt ferlið

- **Alma Sif Kristjánsdóttir**Verkefnastjóri ráðgjafar og raunfærnimats[almasif@rafmennt.is](mailto:almasif@rafmennt.is)[540 0171](tel:+3545400171)

Source: https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ertu-i-studi