title: "Ertu í hljóði? – Raunfærnimat í hljóðtækni"
description: "Verkefnið „Ertu í hljóði?“ er unnið í samstarfi við Skerpu, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Tækniskólann. Raunfærnimatið er á móti færnikröfum sem faghópur úr ólíkum greinum hljóðtækni og hópur…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ertu-i-hljodi"

# Ertu í hljóði? – Raunfærnimat í hljóðtækni

Verkefnið „Ertu í hljóði?“ er unnið í samstarfi við Skerpu, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Tækniskólann.

Raunfærnimatið er á móti færnikröfum sem faghópur úr ólíkum greinum hljóðtækni og hópur stjórnenda settu saman, með hliðsjón af [námskrá í hljóðtækni (2020)](https://namskra.is/programmes/e75caea9-1075-48d1-8fe6-9b3e10e8fc61) og þeirri færni sem hljóðmenn þurfa að búa yfir í starfi.

## Hvernig þetta gengur

Þú sækir um rafrænt á Innu á [umsóknarfresti](https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat). Eftir að honum lýkur mæta þátttakendur á kynningarfund á Teams þar sem verkefni ferlisins eru kynnt; þeir sem hafa áhuga á fundinum en hafa ekki sótt um geta haft samband við náms- og starfsráðgjafa. Ferlið í heild er lýst á síðunni [Raunfærnimatsferlið](https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ferlid).

Þegar öllum námsþáttum er fullnægt fá þátttakendur burtfararskírteini í hljóðtækni. Ekki er hægt að útskrifast frá Rafmennt.

## Áður en þú sækir um

Kynntu þér inntökuskilyrðin og kostnaðinn og hakaðu við hvort atriði. Hnappurinn á umsóknina birtist þegar þú hefur hakað við bæði.

**0** af 2 atriðum lokið

1.

Raunfærnimat er fyrir þá sem hafa starfað við hljóðtækni – upptökur, hljóðvinnslu og mögnun – án þess að hafa lokið námi í greininni.

| Mat á | Lágmarksaldur | Starfsreynsla í greininni |

| 3. þrepi | 23 ára | 3 ár |
| 4. þrepi | 25 ára | 5 ár |

Ég hef kynnt mér inntökuskilyrðin
2.
3. **Sækja um**

Hakaðu við öll atriðin hér að ofan til að fá hlekkinn á umsóknina.

## Verkefni og gögn

- [Word**Færnimappa**Skjalið sem þú fyllir út og skilar á Innu · 236 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/ed6c4f56-c123-4c91-8ceb-47c63673a896)
- [Excel**Gátlisti fyrir hljóðtækni**42 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/35fd0a70-1afe-4895-8fd0-78b9ad549038)
- [PDF**Dagskrá haust 2026**113 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/e396500e-f734-47ac-be14-c235ef8f20b7)
- [Vefur**Námskrá í hljóðtækni 2020**namskra.is](https://namskra.is/programmes/e75caea9-1075-48d1-8fe6-9b3e10e8fc61)

## Verkefnastjóri og náms- og starfsráðgjafi fylgja þér eftir í gegnum allt ferlið

- **Ingi Bekk**Verkefnastjóri miðlunar, tækni og skapandi greina[ingi@rafmennt.is](mailto:ingi@rafmennt.is)[540 0169](tel:+3545400169)
- **Alma Sif Kristjánsdóttir**Verkefnastjóri ráðgjafar og raunfærnimats[almasif@rafmennt.is](mailto:almasif@rafmennt.is)[540 0171](tel:+3545400171)

Source: https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ertu-i-hljodi