---
title: "Raunfærnimat"
description: "Raunfærnimat er formlegt mat á þekkingu og færni sem þú hefur aflað þér utan skóla – með starfsreynslu, starfsnámi, námskeiðum, félagsstörfum og lífsreynslu. Matið greinir hvar þú stendur, metur…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat"
---

# Raunfærnimat

Raunfærnimat er formlegt mat á þekkingu og færni sem þú hefur aflað þér utan skóla – með starfsreynslu, starfsnámi, námskeiðum, félagsstörfum og lífsreynslu. Matið greinir hvar þú stendur, metur færnina til eininga og gefur þér kost á að ljúka iðnnáminu sem þú hófst á sínum tíma. Rúmlega 500 manns hafa lokið raunfærnimati í iðngreinum hjá Rafmennt.

**Opnað verður fyrir umsóknir í janúar 2027.** Vorið 2027 er raunfærnimat í boði í rafiðngreinum (Ertu í stuði?) og hljóðtækni (Ertu í hljóði?). Þú sækir um rafrænt á Innu – sjá [leiðbeiningar um umsókn á Innu](https://www.rafmennt.is/media/id/49773475-623e-4877-b6c2-ed63ac3340ba)

<a id="greinar-i-bodi"></a>

## Greinar í boði

- [**Ertu í stuði? – rafiðngreinar**Fyrir þá sem hófu nám í rafiðngreinum en luku því ekki. Leiðir að rétti til að þreyta sveinspróf.](https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ertu-i-studi)
- [**Ertu í hljóði? – hljóðtækni**Fyrir þá sem starfa við upptökur, hljóðvinnslu og mögnun. Leiðir að burtfararskírteini í hljóðtækni.](https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ertu-i-hljodi)

<a id="hvernig-er-ferlid"></a>

## Hvernig er ferlið

1. **Umsókn á Innu**

    Þú sækir um rafrænt á Innu á umsóknarfresti.
2. **Kynningarfundur**

    Eftir að umsóknarfresti lýkur eru verkefni ferlisins kynnt á fundi á Teams. Dagsetningar eru í dagskrá haustsins.
3. **Færnimappa**

    Þú bókar fund með náms- og starfsráðgjafa, sem aðstoðar þig við færnimöppuna, fyllir hana út og skilar á Innu.
4. **Gátlisti – sjálfsmat**

    Á gátlistafundi er farið yfir gerð gátlista fyrir sjálfsmat. Þú metur eigin færni, skilar á Innu og ferð yfir sjálfsmatið með fræðslufulltrúa.
5. **Matsviðtöl**

    Metendur – fagaðilar í greininni – boða þig í viðtöl. Þar kemur þú þekkingu þinni og færni á framfæri og getur verið beðin/n að sýna hana eða vinna úr lýsingum á aðstæðum. Náms- og starfsráðgjafi getur setið viðtölin þegar það á við.
6. **Niðurstöður og næstu skref**

    Niðurstöður eru skráðar á Innu. Þú getur bókað tíma hjá náms- og starfsráðgjafa sem fer yfir þær með þér og ræðir næstu skref.

Ítarlegri lýsing á hverju skrefi, matsviðtölunum og lokamarkmiðum eftir greinum: [Raunfærnimatsferlið →](https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat/ferlid)

Kynningarmyndband Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um raunfærnimat

<a id="gogn-og-upplysingar"></a>

## Gögn og upplýsingar

- [PDF**Dagskrá haust 2026**Mikilvægar dagsetningar · 113 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/e396500e-f734-47ac-be14-c235ef8f20b7)
- [PDF**Leiðbeiningar um umsókn á Innu**448 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/49773475-623e-4877-b6c2-ed63ac3340ba)
- [Vefur**Lög um framhaldsfræðslu**](https://www.althingi.is/lagas/nuna/2010027.html)
- [Vefur**Reglugerð um framhaldsfræðslu**](https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/1163-2011)

<a id="vid-fylgjum-ther-i-gegnum-allt-ferlid"></a>

## Við fylgjum þér í gegnum allt ferlið

- **Alma Sif Kristjánsdóttir**Verkefnastjóri ráðgjafar og raunfærnimats[almasif@rafmennt.is](mailto:almasif@rafmennt.is)[540 0171](tel:+3545400171)
- **Ingi Bekk**Verkefnastjóri miðlunar, tækni og skapandi greina[ingi@rafmennt.is](mailto:ingi@rafmennt.is)[540 0169](tel:+3545400169)

Source: https://www.rafmennt.is/thjonusta/raunfaernimat
