---
title: "Nám og störf í rafiðnaði"
description: "Nám í rafiðnaði er lykillinn að spennandi og fjölbreyttum störfum. Vefurinn straumlina.is er upplýsingavefur Rafiðnaðarsambands Íslands um menntun, störf og framtíðarhorfur í rafiðnaði. Hvernig námið…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/thjonusta/nams-og-starfsradgjof/storf-i-rafidnadi"
---

# Nám og störf í rafiðnaði

Nám í rafiðnaði er lykillinn að spennandi og fjölbreyttum störfum. Vefurinn [straumlina.is](http://straumlina.is/) er upplýsingavefur Rafiðnaðarsambands Íslands um menntun, störf og framtíðarhorfur í rafiðnaði.

<a id="hvernig-namid-er-byggt-upp"></a>

## Hvernig námið er byggt upp

Nám í rafiðngreinum hefst á sameiginlegu grunnnámi sem undirbýr nemendur fyrir fagnámið sem þeir velja sér síðar. Grunnnámið tekur að jafnaði fjórar annir og er samtals 120 einingar; það skiptist í almennar bóklegar greinar, fagbóklegar greinar og verklegar greinar. Að því loknu eiga nemendur að vera færir um að takast á við framhaldsgreinarnar og geta hafið [vinnustaðanám](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/vinnustadanam).

Framhaldsgreinarnar að loknu grunnnámi eru [rafeindavirkjun](https://namskra.is/programmes/6720a12e-7fcc-4e5a-9b99-39018594cc69), [rafveituvirkjun](https://namskra.is/programmes/9b5f3b65-3732-4bfe-bcf1-425d50a744e2), rafvélavirkjun og [rafvirkjun](https://namskra.is/programmes/a30d4210-6d1a-4426-908c-b516c3b2400d). Nám í þeim tekur að jafnaði átta annir og er samtals 260 einingar að grunnnáminu meðtöldu – einingafjöldi er lítillega breytilegur milli skóla. Náminu lýkur með [sveinsprófi](https://www.rafmennt.is/sveinsprof) sem veitir réttindi til að starfa í greininni og opnar leið í [meistaranám](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli).

<a id="skolar-sem-bjoda-nam-i-rafidngreinum"></a>

## Skólar sem bjóða nám í rafiðngreinum

| Skóli | Grunnnám | Rafvirkjun | Rafeindavirkjun | Rafveituvirkjun | Hljóðtækni | Kvikmyndatækni |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | [✓](https://www.fb.is/namid/rafvirkjabraut/) | [✓](https://www.fb.is/rafvirkjabraut/) |  |  |  |  |
| Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | [✓](https://www.fnv.is/is/namid/grunndeildir-og-idnnamsbrautir/rafvirkjun) | [✓](https://www.fnv.is/is/namid/grunndeildir-og-idnnamsbrautir/rafvirkjun) |  |  |  |  |
| Fjölbrautaskóli Suðurlands | [✓](https://www.fsu.is/is/moya/page/grunnnam-rafidna-gr) | [✓](https://www.fsu.is/is/moya/page/rafvirkjun-ad-loknu-grunnnami-rafidna) |  |  |  |  |
| Fjölbrautaskóli Suðurnesja | [✓](https://www.fss.is/is/namid/namsbrautir/starfs-og-verknamsbrautir/rafvirkjabraut-2018) | [✓](https://www.fss.is/is/namid/namsbrautir/starfs-og-verknamsbrautir/rafvirkjabraut-2018) |  |  |  |  |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands, Akranesi | [✓](https://www.fva.is/index.php/brautalysingar-fva-2/78-namidh/1452-rafvirkjabraut) | [✓](https://www.fva.is/index.php/brautalysingar-fva-2/78-namidh/1452-rafvirkjabraut) |  |  |  |  |
| Tækniskólinn | [✓](https://tskoli.is/namsbraut/grunnnam-rafidna/) | [✓](https://tskoli.is/namsbraut/rafvirkjun/) | [✓](https://tskoli.is/namsbraut/rafeindavirkjun/) | [✓](https://tskoli.is/namsbraut/rafveituvirkjun/) | [✓](https://tskoli.is/namsbraut/hljodtaekni/) | [✓](https://tskoli.is/namsbraut/kvikmyndataekni/) |
| Verkmenntaskólinn á Akureyri | [✓](https://www.vma.is/is/namid/idnnamsbrautir/rafvirkjun-rk8) | [✓](https://www.vma.is/is/namid/idnnamsbrautir/rafvirkjun-rk8) | [✓](https://www.vma.is/is/namid/idnnamsbrautir/rafeindavirkjun-re8) |  |  |  |
| Verkmenntaskóli Austurlands | [✓](https://www.va.is/is/moya/page/grunnnam-rafidna) | [✓](https://www.va.is/is/moya/page/rafvirkjun) |  |  |  |  |

<a id="storfin"></a>

## Störfin

Störf í rafiðnaði eru fjölbreytt. Starfslýsingar fyrir rafiðn- og tæknigreinarnar eru á Næsta skrefi: [rafeindavirkjun](https://naestaskref.is/job/rafeindavirki/), [rafveituvirkjun](https://naestaskref.is/job/rafveituvirki/), [rafvélavirkjun](https://naestaskref.is/job/rafvelavirki/), [rafvirkjun](https://naestaskref.is/job/rafvirki/), [hljóðtækni](https://naestaskref.is/job/hljodmadur/) og [hljóðhönnun](https://naestaskref.is/job/hljodhonnudur/).

Source: https://www.rafmennt.is/thjonusta/nams-og-starfsradgjof/storf-i-rafidnadi
