---
title: "Rafeindavirki sem vill verða rafvirki"
description: "Einstaklingur sem lokið hefur námi í rafeindavirkjun getur sótt um að þreyta sveinspróf í rafvirkjun eftir að hafa lokið námi í eftirfarandi áföngum. Námið tekur yfir tvær seinustu annirnar í…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/thjonusta/mat-a-menntun/rafeindavirki-sem-vill-verda-rafvirki"
---

# Rafeindavirki sem vill verða rafvirki

Einstaklingur sem lokið hefur námi í rafeindavirkjun getur sótt um að þreyta sveinspróf í rafvirkjun eftir að hafa lokið námi í eftirfarandi áföngum.

Námið tekur yfir tvær seinustu annirnar í rafvirkjun að undanskildum smáspennuáföngum.

Nemendur þurfa einnig að gera námssamning við löggiltan rafvirkjameistara fyrir 30 vikna starfsþjálfun eða ljúka Rafrænni ferilbók.

Námið er samtals 50 - 56 eining og starfþjálfunin 40 einingar.

#### Námsleið: Samningsbundið nám

Nám í skóla 50 - 56 einingar.\*

| Forritanleg raflagnakerfi | 5 - 10 einingar\* |
| --- | --- |
| Lýsingartækni | 5 einingar |
| Rafmagnsfræði og mælingar (rafdreifikerfið) á þriðja þrepi | 10 einingar |
| Raflagnir á þriðja þrepi | 5 einingar |
| Raflagnastaðall | 5 einingar |
| Raflagnateikning | 10 einingar |
| Rafvélar | 5 - 6 einingar\* |
| Stýritækni 4 á þriðja þrepi | 5 einingar |

#### Samtals 50 - 56 einingar

\*(Breytilegt á milli skóla)

Source: https://www.rafmennt.is/thjonusta/mat-a-menntun/rafeindavirki-sem-vill-verda-rafvirki
