---
title: "Námssamningar"
description: "Nemar í rafvélavirkjun og rafveituvirkjun, og nemar sem hófu nám fyrir ágúst 2021, gera námssamninga í sínu vinnustaðanámi. Umsókn um gerð námssamnings Fylgiskjöl með umsóknum um námssamninga:…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/sveinsprof/vinnustadanam/namssamningar"
---

# Námssamningar

Nemar í rafvélavirkjun og rafveituvirkjun, og nemar sem hófu nám fyrir ágúst 2021, gera námssamninga í sínu vinnustaðanámi.

<a id="umsokn-um-gerd-namssamnings"></a>

## Umsókn um gerð námssamnings

Fylgiskjöl með umsóknum um námssamninga:

- Námsferilsyfirlit
- Greiðsluyfirlit frá lífeyrissjóði

**Mikilvægt er að umsókn sé útfyllt og að fylgiskjöl séu til staðar til að umsókn sé tekin gild.**

<a id="eydublod"></a>

## Eyðublöð

- [Word**Umsókn um gerð námssamnings**87 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/fef9145d-caa8-40e9-aae0-bf149132005c)
- [Word**Umsókn um gerð starfsþjálfunarsamnings**96 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/ca6e514e-52f3-4374-874b-84cca87aa2f4)
- [Word**Samkomulag um riftun á námssamningi**79 KB](https://www.rafmennt.is/media/id/6ca2ebab-8982-48a0-b0b2-63d2ba16fde6)

Umsóknirnar eru Word-skjöl (.docx). Best er að fylla þær út og senda í tölvupósti til Rafmenntar. Mögulegt er að senda umsóknina inn rafrænt og láta tölvupóstinn teljast sem undirskrift nemanda.

<a id="reglugerdir"></a>

## Reglugerðir

Menntamálaráðuneytið setur [reglugerðir](https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/840-2011) um námssamninga og starfsþjálfun. Í reglugerðum þessum er fjallað um skyldur samningsaðila og þau skilyrði sem uppfylla þarf til að taka að sér kennslu nema á vinnustað og framkvæmd sveinsprófa.

Menntamálaráðuneytið, Rafmennt og sveinsprófsnefndir í rafiðnaði hafa gert með sér samning vegna umsýslu námssamninga í rafiðngreinum og sveinsprófa. Í samningi þessum er Rafmennt falin umsýsla sveinsprófa og eftirlit með gerð og framkvæmd námssamninga í rafiðngreinum. Þangað skulu öll erindi er varða nýja námssamninga berast, óskir um breytingar á námssamningum og umsóknir um sveinspróf.

<a id="umsjon"></a>

## Umsjón

- **Alma Sif Kristjánsdóttir**Umsjón með náms- og starfsþjálfunarsamningum[almasif@rafmennt.is](mailto:almasif@rafmennt.is)

Source: https://www.rafmennt.is/sveinsprof/vinnustadanam/namssamningar
