---
title: "Rafræn ferilbók"
description: "Rafræn ferilbók er rafræn skráning um framvindu náms og námsferil nemanda á vinnustað þar sem hæfni nemanda er staðfest af umsjónarmönnum skóla og tilsjónarmanni vinnustaðar. Í rafrænni ferilbók eru…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/sveinsprof/vinnustadanam/ferilbok"
---

# Rafræn ferilbók

Rafræn ferilbók er rafræn skráning um framvindu náms og námsferil nemanda á vinnustað þar sem hæfni nemanda er staðfest af umsjónarmönnum skóla og tilsjónarmanni vinnustaðar. Í rafrænni ferilbók eru hæfniþættir skilgreindir sem verkflokkar og verkþættir.

Framhaldsskólar sjá um gerð og staðfestingu á ferilbókum og hafa eftirlit með þeim.

<a id="fyrir-nema"></a>

## Fyrir nema

Nemi hefur samband við þann skóla sem hann er skráður í eða útskrifaðist frá til að stofna rafræna ferilbók. Þar er stofnaður samningur um vinnustaðanám á milli skólans, nemandans og fyrirtækisins. Fyrirtækið verður að vera skráð í Birtingarskrá svo mögulegt sé að tengja nemandann og fyrirtækið saman í gegnum rafræna ferilbók.

- [Leiðbeiningar um rafræna ferilbók](https://www.rafmennt.is/media/id/21fa0563-791e-4eb3-b9f9-3f5beee93e82)
- [Kynningarmyndbönd og aðrar upplýsingar](https://island.is/s/midstod-menntunar-og-skolathjonustu/rafraen-ferilbok) um rafræna ferilbók á Ísland.is
- [Upplýsingar um ferilbók](https://nemastofa.is/idnneminn/rafraen-ferilbok/) hjá Nemastofu

<a id="fyrir-meistara"></a>

## Fyrir meistara

Fyrsta sem meistari þarf að gera til að hefja vinnu í rafrænni ferilbók er að skrá sig í Birtingarskrá. Þar þarf að skrá sig inn með íslykli fyrirtækisins og setja inn upplýsingar um meistara, meistarabréf og fyrirtæki.

- [Birtingarskrá umsóknargátt](https://ferilbok-vinnustadir.inna.is/)
- [Birtingarskrá leiðbeiningar](https://mms.is/sites/mms.is/files/birtingarskra_1_6_7pr.pdf)

Ef meistari eða fyrirtæki lendir í vandræðum með að skrá sig í Birtingarskrá er hægt að hafa samband við Nemastofu ([nemastofa@nemastofa.is](mailto:nemastofa@nemastofa.is)) til að fá aðstoð.

- [Kynningarmyndbönd fyrir meistara](https://island.is/s/midstod-menntunar-og-skolathjonustu/rafraen-ferilbok) og aðrar upplýsingar um rafræna ferilbók
- [Leiðbeiningar um rafræna ferilbók](https://www.rafmennt.is/media/id/21fa0563-791e-4eb3-b9f9-3f5beee93e82)

<a id="styrkir-til-rafverktaka"></a>

## Styrkir til rafverktaka

Styrkir til rafverktaka sem taka nemendur á samning eru í gegnum [Vinnustaðanámssjóð](https://www.rannis.is/sjodir/menntun/vinnustadanamssjodur/). Sótt er um einu sinni á ári í lok árs. [Nánar hér](https://www.rannis.is/sjodir/menntun/vinnustadanamssjodur/nanar-um-sjodinn/).

<a id="umsjon"></a>

## Umsjón

- **Alma Sif Kristjánsdóttir**Umsjón með náms- og starfsþjálfunarsamningum[almasif@rafmennt.is](mailto:almasif@rafmennt.is)

Source: https://www.rafmennt.is/sveinsprof/vinnustadanam/ferilbok
