---
title: "Vinnustaðanám"
description: "Nám í rafiðnaði er skipt í vinnustaðanám og nám í skóla. Tilgangur vinnustaðanáms er að efla þekkingu, færni og skilning nema á verkþáttum námsins. Að loknu vinnustaðanámi og skóla á neminn að hafa…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/sveinsprof/vinnustadanam"
---

# Vinnustaðanám

Nám í rafiðnaði er skipt í vinnustaðanám og nám í skóla. Tilgangur vinnustaðanáms er að efla þekkingu, færni og skilning nema á verkþáttum námsins. Að loknu vinnustaðanámi og skóla á neminn að hafa öðlast þá færni sem þarf til að standast sveinspróf.

Að loknum tveimur önnum í grunnnámi má hefja vinnustaðanám. **Námssamninga eða rafræna ferilbók skal gera í upphafi vinnustaðanáms og ekki seinna en mánuði eftir að vinna hefst hjá meistara í faginu.**

Nemendur verða að vera orðnir 16 ára til að mega fara á námssamning og hafa lokið 2 önnum í grunndeild rafiðnaðar.

- [**Rafræn ferilbók**Fyrir nema sem hófu nám eftir ágúst 2021. Upplýsingar fyrir nema og meistara.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/vinnustadanam/ferilbok)
- [**Námssamningar**Umsókn um gerð námssamnings, fylgiskjöl og eyðublöð.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/vinnustadanam/namssamningar)
- [**Leit að vinnustað**Aðstoð fyrir nema sem leita að vinnustaðanámi, og fyrir meistara sem leita að nemum.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/vinnustadanam/leit-ad-vinnustad)

<a id="namssamningur-eda-ferilbok"></a>

## Námssamningur eða ferilbók

**Nemar sem hófu nám eftir ágúst 2021 falla undir nýja** [reglugerð um vinnustaðanám](https://island.is/reglugerdir/nr/0180-2021) **þar sem ferilbók tekur gildi í stað námssamninga.**

- Rafræn ferilbók er að taka við af námssamningum og mælt er með að nemar nýti sér hana í vinnustaðanámi. Hún er byggð á hæfni frekar en tímalengd.
- Námssamningar eru ýmist 30 vikna starfsþjálfunarsamningur eða 48 vikna samningsbundið iðnnám.
- **Nemar í rafvélavirkjun og rafveituvirkjun halda áfram að gera námssamninga í sínu vinnustaðanámi.**

<a id="umsjon"></a>

## Umsjón

- **Alma Sif Kristjánsdóttir**Umsjón með náms- og starfsþjálfunarsamningum[almasif@rafmennt.is](mailto:almasif@rafmennt.is)
- **Guðmundur S. Jónsson**Umsjón með sveinsprófum í rafiðngreinum[gudmundurs@rafmennt.is](mailto:gudmundurs@rafmennt.is)[540 0160](tel:+3545400160)

Source: https://www.rafmennt.is/sveinsprof/vinnustadanam
