title: "Sveinspróf í rafvirkjun"
description: "Auka sveinspróf í rafvirkjun í október 2026 Prófin verða aðeins haldin í Reykjavík og hefjast mánudaginn 5. október. Umsóknarfrestur fyrir Sveinspróf í október er 2. júlí - 16. ágúst 2026. Búið er að…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafvirkjun"

# Sveinspróf í rafvirkjun

## Ekki er opið fyrir skráningu

Sveinspróf í rafvirkjun eru haldin í febrúar (viku 6) og júní (viku 23) í Reykjavík og á Akureyri ef næg þátttaka fæst.

**Auka sveinspróf í rafvirkjun í október 2026**

Prófin verða aðeins haldin í Reykjavík og hefjast mánudaginn 5. október.

Umsóknarfrestur fyrir Sveinspróf í október er 2. júlí - 16. ágúst 2026. Búið er að loka fyrir umsóknir í sveinspróf í október.

- [**Umsókn**Gátlisti yfir það sem þarf að fylgja umsókn, og hlekkurinn á umsóknina.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafvirkjun/umsokn)
- [**Dagskrá**Prófdagar, tímar og staðir í Reykjavík og á Akureyri.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafvirkjun/dagskra)
- [**Undirbúningur**Prófþáttalýsing, efnislisti, formúluhefti og undirbúningsnámskeið.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafvirkjun/undirbuningur)
- [**Gömul próf**Eldri sveinspróf í rafvirkjun til að æfa sig á.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafvirkjun/gomul-prof)

## Ferlið í stuttu máli

1. **Ljúktu vinnustaðanámi**

Samkvæmt rafrænni ferilbók eða námssamningi. Því þarf að vera lokið áður en sveinsprófið hefst.
2. **Sæktu um innan umsóknarfrests**

1.–30. nóvember fyrir febrúar og 1.–31. mars fyrir júní. Gátlistinn á umsóknarsíðunni sýnir hvaða gögn þurfa að fylgja.
3. **Kynningarfundur**

Sveinsprófsnefnd kynnir prófin fyrir próftökum hjá Rafmennt og á Teams.
4. **Prófin**

Skriflegur hluti og verklegur hluti eftir dagskrá.
5. **Prófsýning og sveinsbréf**

Mennta- og barnamálaráðuneytið gefur út sveinsbréfin og þau eru afhent við athöfn.

## Umsóknarfrestur

| Sveinspróf | Umsóknarfrestur |

| Febrúar | 1.–30. nóvember |
| Júní | 1.–31. mars |

**Ekki er tekið við umsóknum í sveinspróf eftir að umsóknarfrestur er liðinn.**

## Um prófið

Sveinspróf í rafvirkjun skiptist í **verklegan hluta** og **skriflegan hluta**.

- Verklegur hluti: raflagnir og stýringar (básinn) og mælingar.
- Skriflegur hluti: íslenskur staðall, rafmagnsfræði og raflagnateikning.

## Reglugerðir og leiðbeiningar

- [Reglugerð um sveinspróf](https://www.reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduneytum/mennta--og-menningarmalaraduneyti/nr/15827)
- [Reglugerð um vinnustaðanám](https://island.is/reglugerdir/nr/0180-2021)
- [Leiðbeiningar um rafræna ferilbók](https://www.rafmennt.is/media/id/21fa0563-791e-4eb3-b9f9-3f5beee93e82)

## Umsjón

- **Guðmundur S. Jónsson**Umsjón með sveinsprófum í rafiðngreinum[gudmundurs@rafmennt.is](mailto:gudmundurs@rafmennt.is)[540 0160](tel:+3545400160)

Source: https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafvirkjun