title: "Sveinspróf í rafeindavirkjun"
description: "Umsóknarfrestur Umsóknarfrestur fyrir sveinsprófin á haustönn verður 1.–31. október 2026. Ekki er tekið við umsóknum í sveinspróf eftir að umsóknarfrestur er liðinn. Prófin Á 6. önn er sveinspróf í:…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafeindavirkjun"

# Sveinspróf í rafeindavirkjun

## Ekki er opið fyrir umsóknir

Sveinspróf í rafeindavirkjun eru haldin tvisvar á ári í lok skólaannar og eru samþætt lokaprófum á 6. og 7. önn í skólum sem kenna rafeindavirkjun.

- [**Umsókn**Gátlisti yfir það sem þarf að fylgja umsókn, og hlekkurinn á umsóknina.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafeindavirkjun/umsokn)
- [**Dagskrá**Prófdagar og stofur í Tækniskólanum og Verkmenntaskólanum á Akureyri.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafeindavirkjun/dagskra)
- [**Undirbúningur**Prófþáttalýsing rafeindavirkja.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafeindavirkjun/undirbuningur)
- [**Gömul próf**Eldri sveinspróf í rafeindavirkjun til að æfa sig á.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafeindavirkjun/gomul-prof)

## Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur fyrir sveinsprófin á haustönn verður 1.–31. október 2026.

**Ekki er tekið við umsóknum í sveinspróf eftir að umsóknarfrestur er liðinn.**

## Prófin

**Á 6. önn er sveinspróf í:**

- Smíði og hönnun SMH 203

**Á 7. önn er sveinspróf í:**

- Fagteikningu FTK 301
- Fjarskiptatækni FJS 303
- Net og miðlun NOM 303
- Rafeindabúnaði og mælingum RAB 303
- Stafrænni tækni og sjálfvirkni STS 303
- Rafeindavélfræði MEK 303

MEK (Mekatronic) / STT (Stýritækni og forritun) próftakar kynna verkefni og fá spurningar frá sveinsprófsnefnd. Próftökum verður raðað niður á tíma.

Sveinspróf í [rafeindavirkjun](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafeindavirkjun) eru samþætt lokaprófum á 6. og 7. önn í skóla.

## Eldra fyrirkomulag

Ef þú laukst námi fyrir 2010, áður en sveinspróf voru samþætt lokaprófum 6. og 7. annar, og óskar eftir að taka sveinspróf eftir eldra fyrirkomulagi, vinsamlega hafðu þá samband við skrifstofu Rafmenntar.

## Reglugerðir og leiðbeiningar

- [Reglugerð um sveinspróf](https://www.reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduneytum/mennta--og-menningarmalaraduneyti/nr/15827)
- [Reglugerð um vinnustaðanám](https://island.is/reglugerdir/nr/0180-2021)
- [Leiðbeiningar um rafræna ferilbók](https://www.rafmennt.is/media/id/21fa0563-791e-4eb3-b9f9-3f5beee93e82)

## Umsjón

- **Guðmundur S. Jónsson**Umsjón með sveinsprófum í rafiðngreinum[gudmundurs@rafmennt.is](mailto:gudmundurs@rafmennt.is)[540 0160](tel:+3545400160)

Source: https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafeindavirkjun