title: "Sveinspróf"
description: "Journeyman examinations, application deadlines, requirements and preparation"
canonical: "https://www.rafmennt.is/sveinsprof"

# Sveinspróf

Rafmennt annast framkvæmd sveinsprófa í rafiðngreinum: umsóknir, próftöflur og niðurstöður.

Sveinspróf í V27

## Opið fyrir umsóknir til 30. nóvember 2026

26 dagar eftir til að sækja um. Prófin fara fram 8.–17. febrúar 2027.

[Sækja um sveinspróf →](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafvirkjun/umsokn)

## Veldu grein

- [**Rafvirkjun**Í febrúar og júní, í Reykjavík og á Akureyri.Opið fyrir umsóknir til 30. nóvember 2026](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafvirkjun)
- [**Rafeindavirkjun**Samþætt lokaprófum á 6. og 7. önn í skóla.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafeindavirkjun)
- [**Rafveituvirkjun**Viðbótarnám við rafvirkjun.Opið fyrir umsóknir til 30. nóvember 2026](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafveituvirkjun)
- [**Rafvélavirkjun**Viðbótarnám við rafvirkjun.Opið fyrir umsóknir til 30. nóvember 2026](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafvelavirkjun)

## Fleira tengt sveinsprófum

- [**Vinnustaðanám**Rafræn ferilbók, námssamningar og aðstoð við að finna vinnustað.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/vinnustadanam)
- [**Staðfesting á sveinsprófi**Ef sveinsbréfið hefur glatast eða skemmst.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/stadfesting)
- [**Hæfniviðmið**Starfalýsingar og hæfnikröfur rafiðngreina.](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/haefnividmid)

## Umsóknarfrestur

Sveinspróf í [rafvirkjun](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafvirkjun), [rafvélavirkjun](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafvelavirkjun) og [rafveituvirkjun](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/rafveituvirkjun) eru haldin í febrúar (viku 6) og júní (viku 23) ef næg þátttaka fæst. Sveinspróf í rafvirkjun eru haldin í Reykjavík og á Akureyri.

| Sveinspróf í raf-, rafveitu- og rafvélavirkjun | Umsóknarfrestur |

| Febrúar | 1.–30. nóvember |
| Júní | 1.–31. mars |

**Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum í gegnum vefsíðu Rafmenntar.**

## Sveinsbréf

Sýslumaður sér um útgáfu sveinsbréfa, gjald fyrir útgáfu sveinsbréfa er 12.000 kr.

Ef sveinsbréf hefur glatast eða skemmst er mögulegt að fá [staðfestingu á sveinsprófi](https://www.rafmennt.is/sveinsprof/stadfesting) senda í tölvupósti frá Rafmennt. Ef einstaklingur vill láta prenta það aftur þarf að hafa samband við sýslumannsembættið.

## Reglugerð

Mennta- og barnamálaráðuneytið gefur út [reglugerð](https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=a4cd31e7-33e0-4d97-ba0b-89254b12a77c) varðandi sveinspróf.

## Umsjón

- **Guðmundur S. Jónsson**Umsjón með sveinsprófum í rafiðngreinum[gudmundur@rafmennt.is](mailto:gudmundur@rafmennt.is)[540 0160](tel:+3545400160)
- **Alma Sif Kristjánsdóttir**Umsjón með náms- og starfsþjálfunarsamningum[almasif@rafmennt.is](mailto:almasif@rafmennt.is)[540 0160](tel:+3545400160)

Source: https://www.rafmennt.is/sveinsprof