---
title: "Um meistaranámið"
description: "Iðnmeistaranám í rafiðngreinum er 68 einingar (framhaldsskólaeiningar) nám á 4. hæfniþrepi íslensks hæfniramma um menntun. Náminu er skipt upp í tvo hluta, A og B-hluta. Í A-hluta eru grunnáfangar í…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/um"
---

# Um meistaranámið

Iðnmeistaranám í rafiðngreinum er 68 einingar (framhaldsskólaeiningar) nám á 4. hæfniþrepi íslensks hæfniramma um menntun. Náminu er skipt upp í tvo hluta, A og B-hluta.

Í A-hluta eru grunnáfangar í rekstri, stjórnun og stofnun fyrirtækja, samtals 27 einingar. Í B-hluta eru einnig áfangar tengdir fyrirtækjum og rekstri auk fagtengds efnis, samtals 38 einingar.

Nemendur taka A-hluta námsins og 11 einingar af B-hluta námsins í framhaldsskóla sem býður upp á það og er það ýmist í dreifnámi/fjarnámi eða staðbundnum lotum.

Skólar sem bjóða upp á meistaranám í almennum hluta:

| ![Um meistaranámið](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/86621ace-615e-411e-b33d-66c619c7b545) | [Tækniskólinn](https://tskoli.is/namsbraut/meistaranam/) |
| --- | --- |
| ![Um meistaranámið](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/dcebc03c-d7b2-4a49-8b0c-7c7bf7f53a0e) | [Verkmenntaskólinn á Akureyri](https://www.vma.is/is/fjarnam/meistaraskoli) |
| ![Um meistaranámið](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/4b2d8822-66ba-48ae-a6b6-c17dad8913c0) | [Fjölbrautarskóli Suðurnesja](https://www.fss.is/is/namid/namsbrautir/idnmeistaranam) |
| ![Um meistaranámið](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/57c08a0f-950d-432a-8321-149e6cdbf727) | [Fjölbrautaskóli Vesturlands](https://fva.is/idnmeistaranam-dreifnam/) |
| ![Um meistaranámið](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/18486491-1c13-4deb-9122-c6457c35541d) | [Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra](https://www.fnv.is/is/namid/grunndeildir-og-idnnamsbrautir/meistaranam-idngreina) |
| ![Um meistaranámið](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/03708930-6980-4b51-95d0-d25dafcdda7f) | [Menntaskólinn á Ísafirði](https://www.misa.is/is/namid/brautir/idnmeistaranam) |
| ![Um meistaranámið](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/eed4ff0f-f3a6-4a78-946c-0984cfb594e4) | [Verkmenntaskóli Austurlands](https://www.va.is/is/namid/namsbrautir/idnmeistaranam) |
| ![Um meistaranámið](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/00d5ad07-ac4c-40d5-871a-657593c5f49b) | [Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum](https://www.fiv.is/is/namid/namsbrautir/idnmeistaranam) |

---

Rafmennt annast kennslu í faggreinum B-hlutans fyrir raf-, rafveitu- og rafeindavirkja. Hægt er að skrá sig hér fyrir neðan eða skrá sig á inn í "námskeið í boði".

Hægt er að vera skráður á mörg námskeið en fylla þarf út umsókn fyrir hvert námskeið fyrir sig þegar sótt er um.

[Skráning hér](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

---

Meistaranámið miðar að því að gera nemendur hæfa til að reka fyrirtæki skv. 10. grein iðnaðarlaga nr. 42/1978 og vera færa um að sjá um leiðsögn og kennslu iðnnema í eigin iðngrein. Hver maður getur leyst til sín meistarabréf ef hann fullnægir skilyrðum 3. gr. laganna, hefur lokið sveinsprófi, unnið síðan undir stjórn meistara í iðngrein sinni eitt ár minnst og jafnframt lokið meistaraprófi í iðninni frá meistaraskóla.

Námsmatið á að vera leiðbeinandi fyrir nemendur og gefa þeim möguleika á að fylgjast með eigin árangri. Það skal vera fjölbreytt, s.s. skrifleg próf, verkefni, kynningar og fleira. Lögð er áhersla á verkefnabundið nám þar sem nemendur vinna einir eða í hópi með verkefni tengd sínu fagi.

Nemendur þurfa að ljúka hverjum áfanga fyrir sig með einkunninni 5 að lágmarki. Þeir nemendur sem þess óska geta hafið nám í faggreinum Rafmenntar þótt þeir hafi ekki lokið kjarnagreinum A-hlutans. Mælt er með að áfanginn „Grunnur að gæðahandbók“ sé tekinn á fyrstu önn og lokaverkefni hvers hluta er unnið samhliða öðrum áföngum hlutans.

Til að innritast í meistaranám þarf nemandi að hafa staðist sveinspróf í sinni iðngrein.

[Náms- og starfsráðgjafi Rafmenntar](https://www.rafmennt.is/thjonusta/nams-og-starfsradgjof) aðstoðar nemendur við skipulag á námi og mælt er með að nemendur hafi samband og bóki viðtalstíma með því að hringja í síma 540-0171 eða senda tölvupóst á netfangið almasif(hjá)rafmennt.is

---

Sótt er um **rafrænt** um löggildingu iðnmeistara í gegnum **Mínar síður** á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).

[Upplýsingar um löggildingar hönnuða og iðnmeistara](https://hms.is/mannvirki/faga%C3%B0ilar-i-mannvirkjagerd/starfsleyfi-og-loggildingar/loggildingar-honnu%C3%B0a-og-i%C3%B0nmeistara)

[Upplýsingar um löggildingu rafverktaka](https://hms.is/mannvirki/rafmagnsoryggi/rafverktakar/loggilding-rafverktaka)

Source: https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/um
