---
title: "Stýringar"
description: "Stýringar - iðntölvur I Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá: MSTY4IT03(BA) Á námskeiðinu er byggt ofaná þá þekkingu á iðntölvum og búnaði sem nemendur hafa öðlast. Viðfangsefnin eru gerð flæðirita…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/styringar"
---

# Stýringar

**Stýringar - iðntölvur I**

**Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá:** **[MSTY4IT03(BA)](https://namskra.is/courses/5ba39840d4ed76037e0065b9)**

Á námskeiðinu er byggt ofaná þá þekkingu á iðntölvum og búnaði sem nemendur hafa öðlast. Viðfangsefnin eru gerð flæðirita við lausn stýriverkefna og færslu flæðirita í forrit. Þá er fjallað um stöðluð hliðræn merki og forritun þeirra, farið í reikniaðgerðir og forritun í tvíundarorðum. Flæðirit og forrit eru gerð eftir lýsingum, slegin inn og prófuð í iðntölvum tengdum hermum. Einnig eru gerð flæðirit og forrit þar sem fram koma bæði stafræn og hliðræn merki og þau prófuð í iðntölvum tengdum hermum.

**Stýringar - ljósleiðarar**

**Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá:** **[MSTY4LJ01(BA)](https://namskra.is/courses/5ba8abc3d4ed76037e00953d)**

Viðfangsefni námskeiðsins eru ljósleiðarar. Eftir nám á námskeiðinu eiga nemendur að geta tengt ljósleiðara við endabúnað, reiknað út orkutap sem verður á leið þeirra og lagningu þeirra með hámarksendingu í huga og lagt hann þannig að hann endist. Farið verður í mismunandi gerðir ljósleiðara og val m.t.t. nota við mismunandi aðstæður og við tengingar mismunandi búnaðar.

**Stýringar - loftstýringar**

**Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá:** **[MSTY4LO01(BA)](https://namskra.is/courses/5ba39993d4ed76037e0065c4)**

Viðfangsefni námskeiðsins eru loftstýringar. Nemendur lesa úr algengustu loftstýritáknum, læra að hanna einföld loftstýrikerfi, tengja loftstýrikerfi og finna bilanir í þeim. Þá er farið yfir helstu íhluti loftstýrikerfa, virkni þeirra og teiknitákn. Auk þess hanna nemendur loftstýrikerfi, tengja þau og prófa.

[Næstu námskeið](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/namskeid)

Source: https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/styringar
