---
title: "Stýringar"
description: "Stýringar - iðntölvur II Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá: MSTY4IT04(BA) Á námskeiðinu fá nemendur haldgóða framhaldsþekkingu á iðntölvum og búnaði þeim tengdum. Viðfangsefnin eru gerð flæðirita…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/styringar-val"
---

# Stýringar

**Stýringar - iðntölvur II**

**Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá:** **[MSTY4IT04(BA)](https://namskra.is/courses/5ba8e227d4ed76037e009860)**

Á námskeiðinu fá nemendur haldgóða framhaldsþekkingu á iðntölvum og búnaði þeim tengdum. Viðfangsefnin eru gerð flæðirita við lausn stýriverkefna og færslu flæðirita í skjámyndir. Þá er fjallað um stöðluð hliðræn merki og forritun þeirra, farið í reikniaðgerðir og forritun í tvíundarorðum til túlkunar á skjámyndum og í gagnagrunna. Flæðirit og forrit eru gerð eftir lýsingum, slegin inn og prófuð í iðntölvum tengdum hermum. Einnig eru gerð flæðirit og forrit þar sem fram koma bæði stafræn og hliðræn merki og þau prófuð í iðntölvum tengdum hermum. Farið er sérstaklega í hugbúnað sem gerir kleift að nota PC tölvu sem eftirlits- og stjórnstöð við iðnstýringar. Þátttakendur gera skjámyndir sem sýna feril vélstýringar á myndrænan hátt og tengja saman iðnstýringu og PC tölvu. Kynntir eru notkunarmöguleikar skráningar í gagnagrunna.

[Næstu námskeið](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

Source: https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/styringar-val
