---
title: "Öryggisfræði"
description: "Brunaviðvörunarkerfi og brunaþéttingar Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá: MÖRY4BB02(BA) Á námskeiðinu læra nemendur um hina ýmsu íhluti brunaviðvörunarkerfa, eiginleika þeirra, notkunarsvið,…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/oryggisfraedi"
---

# Öryggisfræði

**Brunaviðvörunarkerfi og brunaþéttingar**

**Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá:** **[MÖRY4BB02(BA)](https://namskra.is/courses/5ba8bc19d4ed76037e009600)**

Á námskeiðinu læra nemendur um hina ýmsu íhluti brunaviðvörunarkerfa, eiginleika þeirra, notkunarsvið, lagnir og tengingar. Þá er fjallað um öryggis- og brunafræði, reglur um brunaviðvörunarkerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi slíkra kerfa. Fylgt er reglugerð um brunavarnir, einnig læra nemendur skil á brunahólfun mannvirkja, hinum ýmsu gerðum brunaþéttinga, eiginleikum þeirra, notkunarsviði og helstu reglum þar um.

**Öryggis- og aðgangsstýrikerfi**

**Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá:** **[MÖRY4AS02(BA)](https://namskra.is/courses/5ba8c82bd4ed76037e009685)**

Á námskeiðinu er farið í uppbyggingu, forsendur og hönnun sambyggðra öryggis- og aðgangsstýrikerfa. Nemendur fá yfirsýn yfir uppbyggingu innbrotsviðvörunarkerfa og forsendur sem liggja að baki stjórnun og vöktun hurða. Einnig er farið í öryggisstig við vöktun hurða og frágang búnaðar við hurðir. Þá eru mismunandi gerðir aðgangskerfa kynntar, farið í val á aðgangskortum, skilríkjum, lestrartækni og raflyklum og þá möguleika sem slíkur búnaður býður upp á. Þátttakendur fá innsýn í og skilning á helstu kerfum, tengingum, virkni og almennum viðmiðunum um öryggis- og aðgangskerfi hér á landi. Námskeiðið er fyrir rafiðnaðarmenn sem grunnám vegna starfa við uppsetningar og viðhaldsstörf tengdum aðgangs og öryggiskerfum. Einnig er námið góður grunnur fyrir þá sem sinna öryggisráðgjöf og sölustörfum.

**Öryggis- og vinnuvistfræði**

**Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá:** **[MÖRY4VV01(BA)](https://namskra.is/courses/5ba8b981d4ed76037e0095d9)**

Viðfangsefni námskeiðsins er áhættumat starfa og vinnuvernd. Lögum samkvæmt ber atvinnurekandi ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Á niðurstöðum áhættumats skal svo gerð áætlun um heilsuvernd. Í áfanganum læra nemendur um helstu þætti sem tengjast áhættumati, framkvæmd þess, gerð vinnuverndaráætlana og þeirra jákvæðu breytinga og þekkingu sem þessir þættir skila inn í fyrirtæki. Farið er yfir grundvallaratriði í rafmagnsöryggi. Fjallað er um helstu hættur af rafmagni og áhrif rafmagns á mannslíkamann ásamt því að farið er yfir rétt vinnubrögð í og við raforkuvirki stór og smá, verklag og verkfæri til notkunar við rafmagnsvinnu. Einnig er fjallað um störf „kunnáttumanna“, hvernig staðið er að setningu og afnámi öryggisráðstafana og vinnu við rekstrareiningu í raforkukerfum. Jafnframt er farið yfir ábyrgðir, framkvæmd og samræmd vinnubrögð við rof og undirbúning vinnu við kerfishluta eða rekstrareiningar í raforkukerfum. Farið er yfir ákvæði gildandi reglugerða varðandi vinnu við raforkuvirki og túlkun þeirra. Sérstaklega er farið í gildandi verklagsreglur Mannvirkjastofnunar.

[Næstu námskeið](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/namskeid)

Source: https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/oryggisfraedi
