---
title: "Forritanleg raflagnakerfi"
description: "Forritanleg raflagnakerfi I Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá: MRAK4LH01 Á þessu námskeiði er lögð áhersla á að nemendur kynnist flóknari forritanlegum ljósa- og hússtjórnarkerfum, tilgangi þeirra…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/forritanleg-raflagnakerfi"
---

# Forritanleg raflagnakerfi

**Forritanleg raflagnakerfi I**

**Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá:** **[MRAK4LH01](https://namskra.is/courses/5ba8e3d1d4ed76037e009880)**

Á þessu námskeiði er lögð áhersla á að nemendur kynnist flóknari forritanlegum ljósa- og hússtjórnarkerfum, tilgangi þeirra og möguleikum. Farið er í möguleika forritanlegra raflagnakerfa við stýringu t.d. ljósa, gluggatjalda, hitastigs, loftræstinga, gluggaopnun, vöktun, skráningu og samskipti heimilistækja, síma-, tölvu- og öryggiskerfa. Þá er fjallað um lagnir og forritun þeirra. Nemendur æfa sig í að leggja lagnir og fá þjálfun í að tengja búnað og forrita kerfi, ganga frá þeim og leiðbeina öðrum um notkun þeirra. Þá eru gagnabankar framleiðenda og notkun þeirra kynnt.

**Forritanleg raflagnakerfi II**

**Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá:** **[MRAK4KX01](https://namskra.is/courses/5ba8e4f8d4ed76037e009890)**

Á þessu námskeiði er lögð áhersla á að nemendur kynnist flóknari forritanlegum ljósa- og hússtjórnarkerfum, tilgangi þeirra og möguleikum. Farið er í möguleika EIB/KNX kerfisins og hvernig má nota það við stýringu t.d. hitagerla, skjáa, veðurstöðva og ljósasena. Þá er fjallað um lagnir og forritun þeirra. Nemendur æfa sig í að leggja lagnir og fá þjálfun í að tengja búnað og forrita kerfi, ganga frá þeim og leiðbeina öðrum um notkun þeirra. Þá eru gagnabankar framleiðenda og notkun þeirra kynnt. Í þessum áfanga forrita nemendur flóknari kerfi en í þeim fyrri og farið er dýpra í forritun einstakra íhluta forritanlegra kerfa. Að námskeiðinu loknu öðlast þátttakendur Evrópska viðurkenningu fyrir KNX basic.

[Næstu námskeið](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

Source: https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/forritanleg-raflagnakerfi
