---
title: "Meistaranám rafvirkja"
description: "Náminu er skipt í tvo hluta, A og B, í A-hluta eru grunnáfangar í rekstri, stjórnun og stofnun fyrirtækja auk kennslu og leiðsagnar. Í B-hluta eru einnig fög tengd fyrirtækjum og rekstri auk…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar"
---

# Meistaranám rafvirkja

Náminu er skipt í tvo hluta, A og B, í A-hluta eru grunnáfangar í rekstri, stjórnun og stofnun fyrirtækja auk kennslu og leiðsagnar. Í B-hluta eru einnig fög tengd fyrirtækjum og rekstri auk fagtengds efnis greinar þar sem við á. Samtals 38 einingar.

Rafmennt annast kennslu í faggreinahluta meistaranáms rafvirkja. Námið fer fram í námskeiðsformi og eru fagreinarnar samtals 30 einingar. Kjarnagreinar eru 26 einingar og síðan eru 4 einingar í vali t.d. af áföngum innan pakkavals. Fagnámskeið Rafmenntar geta einnig talið í valgreinum meistaranáms. Nemendur verða að taka að minnsta kosti 7 einingar á önn til að teljast í reglulegu meistaranámi og njóta þeir þá niðurgreiðslu námsskeiðsgjalda. Námskeiðin eru flest skipulögð sem eins til þriggja daga námskeið í stað og eða fjarnámi. Öllum námskeiðum lýkur þeim með formlegu námsmati í samræmi við markmið og innihald áfangans.

Nánari upplýsingar um skipulag námsins, skv. [námskrá](https://namskra.is/programmes/0e78fd13-d76c-4fc5-858a-8049f57d9608), og áfangalýsingar fyrir meistaranema í rafvirkjun má finna í listanum hér fyrir neðan:

| **Kjarni** | **Einingar** |
| --- | --- |
| **[Bilanaleit](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/bilanaleit)** | **1** |
| **[Fjarskiptakerfi - reglugerðir og staðlar](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/fjarskiptakerfi-reglugerdir-og-stadlar)** | **1** |
| **[Jarðtengikerfi - Spennujafnanir og jarðtengingar lágspennu og smáspennukerfa](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/jardtengikerfi-spennujafnanir-og-jardtengingar-lagspennu-og-smaspennukerfa)** | **1** |
| **[Varmadælur og kælitækni](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/varmadaelur-og-kaelitaekni)** | **2** |
| **[Rafmagnsfræði](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/rafmagnsfraedi)** | **2** |
| **[Rafhreyflar](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/rafhreyflar)** | **1** |
| **[Raflagnatækni](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/raflagnataekni)** | **2** |
| **[Reglugerðir og rafdreifikerfi](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/reglugerdir-og-rafdreifikerfi)** I/II/III | **6** |
| **[Stýringar](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/styringar)**[:](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/styringar) Iðntölvur I/Ljósleiðarar/Loftstýringar | **5** |
| **[Öryggisfræði](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/oryggisfraedi)**[:](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/oryggisfraedi) Brunaviðvörunarkerfi og -þéttingar/Aðgangsstýrikerfi/Vinnuvistfræði | **5** |
| **Fjöldi kjarnaeininga:** | **26** |
| **Fjöldi valeininga:** | **4** |
| **Samtals einingafjöldi:** | **30** |
| **Tillögur af vali** |  |
| **[Forritanleg raflagnakerfi I](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/forritanleg-raflagnakerfi)** |  |
| **[Forritanleg raflagnakerfi II](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/forritanleg-raflagnakerfi)** |  |
| **[Ljósbogahættur](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/ljosbogahaettur)** |  |
| **[Læsa - merkja - prófa](https://www.rafmennt.is/namskeid/laesa-merkja-profa)** |  |
| Öll önnur tæknileg **[námskeið](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit)** hjá Rafmennt eru einnig hluti af vali í meistaranámi. |  |

Source: https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar
