---
title: "Meistaranám rafveituvirkja"
description: "Náminu er skipt í tvo hluta, A og B, í A-hluta eru grunnáfangar í rekstri, stjórnun og stofnun fyrirtækja auk kennslu og leiðsagnar. Í B-hluta eru einnig fög tengd fyrirtækjum og rekstri auk…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafveituvirkjar"
---

# Meistaranám rafveituvirkja

Náminu er skipt í tvo hluta, A og B, í A-hluta eru grunnáfangar í rekstri, stjórnun og stofnun fyrirtækja auk kennslu og leiðsagnar. Í B-hluta eru einnig fög tengd fyrirtækjum og rekstri auk fagtengds efnis greinar þar sem við á. Samtals 38 einingar.

Rafmennt annast kennslu í faggreinahluta meistaranáms rafveituvirkja. Námið fer fram í námskeiðsformi og eru fagreinarnar samtals 13 einingar. Nemendur verða að taka að minnsta kosti 5 einingar á önn til að teljast í reglulegu meistaranámi og njóta þeir þá niðurgreiðslu námsskeiðsgjalda. Námskeiðin eru flest skipulögð sem eins til þriggja daga námskeið í stað og eða fjarnámi. Öllum námskeiðum lýkur þeim með formlegu námsmati í samræmi við markmið og innihald áfangans.

Nánari upplýsingar um skipulag námsins, skv. námskrá, fyrir meistaranema í rafveituvirkjun má finna í listanum hér fyrir neðan:

| **Kjarni faggreina** | **Einingar** |
| --- | --- |
| **[Reglugerðir og rafdreifikerfi](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/reglugerdir-og-rafdreifikerfi)** | **6** |
| **[Raforkukerfi](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafveituvirkjar/raforkukerfi)** | **2** |
| **[Rafmagnsfræði](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/rafmagnsfraedi)** | **2** |
| **[Rafvélar og vélbúnaður í raforkuverum](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafveituvirkjar/rafvelar-og-velbunadur-i-raforkuverum)** | **1** |
| **[Stjórnstöð, fjargæsla og varnabúnaður](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafveituvirkjar/stjornstod-fjargaesla-og-varnarbunadur-i-raforkukerfum)** | **2** |
| **Fjöldi eininga alls:** | **13** |

Source: https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafveituvirkjar
