---
title: "Meistaranám rafeindavirkja"
description: "Náminu er skipt í tvo hluta, A og B, í A-hluta eru grunnáfangar í rekstri, stjórnun og stofnun fyrirtækja auk kennslu og leiðsagnar. Í B-hluta eru einnig fög tengd fyrirtækjum og rekstri auk…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafeindavirkjar"
---

# Meistaranám rafeindavirkja

Náminu er skipt í tvo hluta, A og B, í A-hluta eru grunnáfangar í rekstri, stjórnun og stofnun fyrirtækja auk kennslu og leiðsagnar. Í B-hluta eru einnig fög tengd fyrirtækjum og rekstri auk fagtengds efnis greinar þar sem við á. Samtals 38 einingar.

Rafmennt annast kennslu í faggreinahluta meistaranáms rafeindavirkja. Námið fer fram í námskeiðsformi og eru fagreinarnar samtals 20 einingar. Kjarnagreinar eru 14 einingar og síðan eru 6 einingar í vali sem tengist fagvinnu rafeindavirkja meistara. Fagnámskeið Rafmenntar geta talið í valgreinum meistaranáms. Nemendur verða að taka að minnsta kosti 5 einingar á önn til að teljast í reglulegu meistaranámi og njóta þeir þá niðurgreiðslu námsskeiðsgjalda. Námskeiðin eru flest skipulögð sem eins til þriggja daga námskeið í stað og eða fjarnámi. Öllum námskeiðum lýkur þeim með formlegu námsmati í samræmi við markmið og innihald áfangans.

| **Kjarni** | **Einingar** |
| --- | --- |
| **[Fjarskiptakerfi reglugerðir og staðlar](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/fjarskiptakerfi-reglugerdir-og-stadlar)** | **1** |
| **[Raflagnatækni](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/raflagnataekni)** | **2** |
| **[Stýringar](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafeindavirkjar/styringar)**[:](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafeindavirkjar/styringar) Iðntölvur I/Ljósleiðarar/Forritanleg raflagnakerfi I og II | **6** |
| **[Öryggisfræði](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/oryggisfraedi)**[:](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar/oryggisfraedi) Brunaviðvörunarkerfi og -þéttingar/Aðgangsstýrikerfi/Vinnuvistfræði | **5** |
| **Fjöldi kjarnaeininga:** | **14** |
| **Fjöldi valeininga:** | **6** |
| **Samtals einingafjöldi:** | **20** |
| **Tillögur af vali** |  |
| **[Netkerfi:](https://www.rafmennt.is/namskeid/netthjonusta-taeknikerfi-ot)**Tæknikerfi(OT) - Fortinet |  |
| **[Netkerfi](https://www.rafmennt.is/namskeid/unifi_wifi)**: Unifi-Wifi |  |
| **[ESP32 Örstýringar](https://www.rafmennt.is/namskeid/esp32-ortolvan)** |  |
| **[DALI ljósastýringar](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/dali-ljosastyringar)** |  |
| **[Forritun á iðnaðarþjörkum](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/forritun-a-idnadarthjorkum)** |  |

Öll önnur tæknileg **[námskeið](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit)** hjá Rafmennt eru einnig hluti af vali í meistaranámi.

Source: https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafeindavirkjar
