---
title: "Lagalegar forsendur"
description: "Iðnmeistaranám á sér stoð í iðnaðarlögum svo og lögum og reglugerðum um framhaldsskóla. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla er menntamálaráðuneytinu skylt að halda uppi framhaldsnámi fyrir iðnsveina til…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/lagalegar-forsendur"
---

# Lagalegar forsendur

Iðnmeistaranám á sér stoð í iðnaðarlögum svo og lögum og reglugerðum um framhaldsskóla. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla er menntamálaráðuneytinu skylt að halda uppi framhaldsnámi fyrir iðnsveina til meistaraprófs í því skyni að veita aukna þekkingu í starfsgrein sinni, stjórnun og rekstri fyrirtækja. Í reglugerð um framhaldsskóla segir að meistaranám skuli skipuleggja sem eðlilegt framhald iðnnáms og að það skuli, eftir því sem við verði komið, tengt iðnfræði- og tæknifræðinámi.

Markmið meistaranáms er að veita fræðslu og þjálfun þeim sem lokið hafa sveinsprófi svo þeir geti fengið meistarabréf og staðið fyrir sjálfstæðum rekstri í iðngrein sinni, stjórnað verkum og kennt nýliðum vinnubrögð, öryggisreglur og iðnfræði.

Source: https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/lagalegar-forsendur
